Innlent

Fækkar lög­reglu­em­bættum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Lögregluembættum verður fækkað en þess í stað verða mynduð stærri og öflugri embætti um allt land. Þetta er meðal þess sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í vikunni. Ráðherra segir breytingarnar fela í sér styrkingu lögreglu á landsvísu, eflingu löggæslu og bætta skilvirkni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, þar sem segir að ráðherrann hafi kynnt breytingarnar á fundi lögregluráðs í vikunni og í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag. 

Segir að með fækkun lögregluembættanna verði mynduð stærri og öflugri embætti um land allt. Sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði jafnframt skoðuð sérstaklega. Vinna við útfærslu breytinganna sé enn á frumstigi en ráðherra gerir ráð fyrir því að frumvarp verði lagt fram á Alþingi með haustinu.

„Þetta er ekki nýtt samtal og ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu í landinu öllu og um leið fyrir almenning. Síðustu breytingar á skipulagi lögreglu voru gerðar fyrir rúmum tíu árum síðan og nú er tími til að taka næsta skref. Verkefni lögreglu hafa breyst, samfélagið hefur breyst og við þurfum að styrkja embættin til framtíðar. Með þessu verða til öflugri lögregluembætti á landinu öllu sem geta betur tekist á við breyttan veruleika, bæði innanlands og á alþjóðavísu,“ segir dómsmálaráðherra.

Fleiri lögreglumenn og sterkari embætti

Hún segir að breytingarnar eigi ekki að verða til þess að starfsfólki eða lögreglustöðvum fækki. Það sé þvert á móti áfram skýr vilji hennar að efla löggæslu og halda áfram að fjölga lögreglumönnum. Markmiðið sé skýrt, að til verði stærri og sterkari lögregluembætti.

Þá segir í tilkynningunni að ráðherra leggi mikla áherslu á náið samráð í tengslum við skipulagsbreytingarnar. Af þeirri ástæðu hafo verið skipaður samráðshópur sem gegnir lykilhlutverki við útfærslu þeirra. Í hópnum eiga sæti Drífa Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Halla Bergþóra Björnsdóttir, ríkislögreglustjóri, Grímur Hergeirsson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.

„Þessar breytingar verða unnar í samráði og samtali við lögregluna. Ég reiði mig á gott samstarf við þennan hóp og við munum vera í þéttu samtali við lögregluráð á meðan vinnan stendur yfir,“ segir ráðherra.

Á næstu vikum muni ráðherra heimsækja öll lögregluembætti landsins til að kynna áformin nánar, ræða við starfsfólk og hlusta á sjónarmið þess. Á morgun verði fyrsta heimsóknin til lögreglunnar á Austurlandi.

Núverandi skipulag lögreglu byggir að stórum hluta á breytingum sem tóku gildi árið 2015 þegar embættum var fækkað og starfsemi lögreglu endurskipulögð. Frá þeim tíma hafa verkefni lögreglu þróast verulega. Afbrot verða sífellt flóknari og baráttan við skipulagða brotastarfsemi kallar á aukna samhæfingu milli embætta og sérhæfingu starfsfólks.

Með stærri embættum sé stefnt að því að styrkja faglegt bakland, efla sérhæfingu og bæta getu lögreglu til að mæta þessum áskorunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×