Innherji

Fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­sjóða segir flug­menn taka Icelandair „í gíslingu“

Hörður Ægisson skrifar
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, en sjóðir í rekstri sjóðastýringarfélagsins áttu hverfandi eignarhlut í Icelandair um síðustu áramót.
Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, en sjóðir í rekstri sjóðastýringarfélagsins áttu hverfandi eignarhlut í Icelandair um síðustu áramót.

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.

Deilt hefur verið hart um mögulegar óformlegar verkfallsaðgerðir flugmanna síðustu vikur, en Icelandair hefur ítrekað þurft að aflýsa eða fresta flugferðum þar sem erfitt hefur reynst að manna áhafnir. Þetta hefur gerst á sama tíma og kjarasamningar Icelandair við allar sínar helstu flugstéttir – flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja – hafa verið lausir allt frá því í lok september og nýlega var viðræðum við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands vísað til Ríkissáttasemjara.

Ríkissáttasemjari hefur núna sett samningsaðila í fjölmiðlabann. Fram hefur komið í máli Jóns Þórs Þorvaldssonar, formanns FÍA, að það sé „mjög langt á milli manna“ í viðræðunum.

Í tölvupósti sem Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sendi á flugmenn fyrr í þessum mánuði, fór hann hörðum orðum um það hann kallaði „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ og sagði alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig.

Hlutabréfaverð Icelandair, sem hefur lækkað nánast stöðugt undanfarna mánuði og misseri, stendur núna í 72 aurum á hlut og er núna nálægt sínu lægsta sögulega gildi.

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélag Íslandsbanka, gagnrýnir harðlega framgöngu flugmanna í færslu sem hann birti á Facebook í gærkvöldi – og segist vera „algjörlega kjaftstopp“ yfir aðgerðum þeirra.

Hann heldur því fram að Icelandair geti verið að stefna „aftur í gjaldþrot“ og bendir á að félagið sé búið að tapa samanlagt yfir 70 milljörðum krónum á undanförnum árum. Af þeim sökum sé því augljóst að það er engin „kaka“ til skiptanna, að sögn Kjartans, en hann hefur stýrt Íslandssjóðum undanfarin tíu ár, fjórða stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með eignir í stýringu upp á samtals um 400 milljarða.

Engir fjárfestar munu nokkurn tíman setja pening inn í fyrirtæki sem er ósamkeppnishæft útaf legacy samningum sem eyðileggja rekstur félagsins til framtíðar.

Sjóðir í rekstri Íslandssjóða áttu um síðustu áramót hverfandi eignarhlut í Icelandair en tveir hlutabréfasjóðir félagsins – IS Úrvalsvísitölusjóðurinn og IS EQUUS – voru þá skráðir fyrir bréfum að markaðsvirði samtals tæplega 100 milljónum.

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða bendir á það í skrifum sínum að Icelandair greiði flugmönnum sínum talsvert hærri laun en víðast hvar, jafnvel hærri en þekkist í víðri veröld. Sjálfur hefur forstóri Icelandair sagt, eins og kom fram í tölvupósti hans til flugmanna um miðjan þennan mánuð, að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.

Kjartan Smári segir að flugmennirnir séu með aðgerðum sínum um þessar mundir að taka félagið „í gíslingu“ og markvisst að eyðileggja fyrir því, dag eftir dag. „Í öllum öðrum fyrirtækjum væru starfsmenn sem tækju þátt í slíku einfaldlega reknir með skít og skömm. Og látnir sæta ábyrgð,“ skrifar hann, en bætir við að erfitt sé að reka menn og ráða sökum ævilangra kjarasamninga við „gíslatökumennina.“

Þá rifjar framkvæmdastjóri Íslandssjóða upp að félaginu hafi verið bjargað af fjárfestum fyrir örfáum árum síðan og vísar þá til þess almenna hlutafjárútboðs sem fór fram síðla sumars 2020 samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair. Félagið aflaði sér þá samtals 23 milljarða króna frá fjárfestum, bæði stofnanafjárfestum og eins almenningi, en áskriftargengið í útboðinu var ein króna á hlut. Á meðal fjárfesta sem lögðu Icelandair til fjármuni í því útboði voru sjóðir hjá Íslandssjóðum.

Kjartan Smári segist því komast að þeirri niðurstöðu að „engir fjárfestar“ muni nokkurn tímann setja pening inn í fyrirtæki sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum sem „eyðileggja rekstur“ félagsins til framtíðar.

Forstjóri Icelandair sagðist í fyrrnefndum tölvupósti hvetja alla aðila til að sýna ábyrgð í þessari „alvarlegu stöðu“ og benti á þau „gríðarlegu“ tækifæri sem væru fyrir hendi til að þróa leiðarakerfi félagsins – sem myndi koma bæði starfsmönnum og hluthöfum til góða. „Þetta er allt í okkar höndum en það er ljóst að ef við erum sjálf að valda félaginu tjóni mun okkur ekki takast að afla fjármagns sem er nauðsynlegt til að láta drauma okkar rætast.“

Rekstrarumhverfi Icelandair hefur verið erfitt í talsverðan tíma og einkennst meðal annars af háu raungengi krónunnar, mikilli samkeppni í flugi yfir Atlantshafið og meiri launahækkunum en þekkist hjá helstu keppinautum. Af þeim sökum hefur verið nánast samfellt rekstrartap hjá félaginu um margra ára skeið. Ekki er útlit fyrir að á því verði breyting í ár en þótt niðurstaðan á fyrsta fjórðungi hafi verið sumpart yfir væntingum þá mun vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana lita verulega afkomu næstu fjórðunga.

Vegna stórfelldra verðhækkana á þotueldsneyti þá hefur Icelandair dregið nokkuð saman flugframboð sitt á árinu. Þá tilkynnti félagið einnig um það á dögunum að það hefði tekið þá ákvörðun að hætta rekstri á Boeing 757-vélunum í áætlunarflugi fyrr en áætlað var.

Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarformaður Icelandair, hefur sagt í samtali við Vísir að stjórnin vonist til að farsæl lausn finnist á kjaradeilunni við flugmenn og að hún beri fullt traust til Boga og stjórnenda flugfélagsins. Í samningaviðræðunum að undanförnu hefur vinnufyrirkomulag flugmanna verið þar til umræðu, meðal annars vinnuframlag og skipulagning vinnu með tilliti til vakta og frídaga.


Tengdar fréttir

Icelandair og flug­menn komnir í fjölmiðla­bann

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.

Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014

Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×