Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Logason skrifar 26. maí 2026 10:30 Ef það er ekki til á mynd þá gerðist það ekki. Fólk neyddist til að flýja með fátæklegar eigur sínar þegar eldgos braust út í Grindavík. En gerðist það í raun og veru? Ef það er ekki til á mynd, gerðist það þá? Lögregla bannaði ljósmyndun af flutningi fólks og heimildin í myndrænu formi er því ekki til. Því geta menn haldið því fram að það hafi ekki gerst, eða hvar eru sönnunargögnin? Ljósmyndin, jafn lýgin og hún er, segir þó einhvern sannleika. Hún tekur brot úr atburðarás og skrásetur þetta brot. Hún segir ekki allan sannleikann og getur ekki sagt sannleikann og ekkert nema sannleikann, en segir þó þann sannleika að það sem á myndinni er, það var þarna á þessum tíma og það var einhver atburðarás í gangi. Hún getur sýnt gerendur og þolendur og gefið mönnum hugmynd um hvað gerðist, þó svo hún geti ekki sagt alla söguna því þrátt fyrir allt þá segir ein ljósmynd ekki meira en þúsund orð, þó þurft gæti þúsund orð eða meir til að útskýra eina ljósmynd. Að fjarlægja mynd, rétt eins og lögregla lét vitni að atburðarás í kirkjugarði á Reykjanesi gera, er því að einhverju leyti tilraun til að hafa áhrif á vitni og sannleikann, því ef það er ekki til á mynd hver er þá sannleikurinn? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögregla og yfirvöld reyna þannig að hafa áhrif á frásögnina því þetta gerðist í hruninu þegar lögregla beinlínis reif af ljósmyndara myndavélina og þurrkaði út af kortinu allar myndir. Gerðist það? Það eru ekki til neinar myndir af lögreglu gera þetta og því er spurning hvort frásögn mín sé rétt, þó svo ljósmyndarinn sem átti í hlut geti staðfest þetta. Lögreglu varð þó ekki fullkomlega úr verki því tækni þess tíma gat bjargað einhverjum myndum af kortinu þar sem það hafði ekki verið endurformatað. Til eru aðilar sem segja að Holocaust hafi ekki átt sér stað og spyrja: hvar er sönnunin fyrir því? Einhver hafði fyrir því að hætta lífi og limum og taka myndir af því sem gerðist og sá hinn sami náði að smygla filmunni yfir til Póllands þar sem hún var framkölluð. Fjórar myndir af þeim hryllingi sem þar viðgekkst hafa varðveist. Þær sýna að það átti sér stað atburður. Hryllilegur atburður sem menn hafa deilt um hvort rétt væri að sýna. Það þarf ekki að deila um hvort þessi hryllingur hafi viðgengist, það eru til myndir sem sýna fram á það. Það er til ljósmynd og því gerðist það, burt séð frá því hvort myndin sýni sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sannleikann, þá er hún staðfesting á því að naktar konur voru leiddar til slátrunar og er okkur öllum víti til varnaðar. Það er ekkert lögreglu til varnar þegar hún ritskoðar söguna á meðan hún gerist. Það gagnast ekki lögreglu að segja að ekkert hafi gerst af því að þolandi lögregluofbeldis er illa haldinn á sjúkrahúsi og því eru til fjöldi vitna að afleiðingum gjörða lögreglu. En hvað mun verða sagt eftir 50 ár? Hvar eru ljósmyndirnar, hvar eru sönnunargögnin? Gerðist það sem sagt er frá í raun og veru eða er þetta bara skáldskapur þeirra sem eru í nöp við lögreglu? Vonandi höfum við vit á því í framtíðinni að eyða ekki sönnunargögnum og vonandi leggur lögregla ekki stein í götu ljósmyndara framar, því þó ljósmyndin sé lýgin segir hún ákveðinn sannleika og sýnir að það gerðist eitthvað á einhverjum tíma og sá atburður getur orðið sögulega mikilvægur. Höfundur er ljósmyndari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar