Baldur tekur við Álftnesingum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. maí 2026 18:34 Baldur Þór fagnar Íslandsmeistaratitli með Stjörnunni fyrir ári síðan. vísir/hulda margrét Álftanes er búið að finna sér nýjan þjálfara í Bónus-deild karla og fóru ekki um langan veg til þess að finna hann.
Baldur Þór Ragnarsson er nefnilega nýr þjálfari Álftaness en hann er nýhættur störfum hjá nágrannaliði Stjörnunnar. Baldur tekur við starfinu af Hjalta Þór Vilhjálmssyni. Hjalti stýrði liðinu eftir áramót er Kjartan Atli Kjartansson sagði starfi sínu lausu. Klippa: Baldur kynntur til leiks Hér að neðan má sjá fréttatilkynningu Álftnesinga: Stjórn Álftaness hefur gengið frá ráðningu Baldurs Þórs Ragnarssonar sem næsta þjálfara Álftaness. Baldur býr yfir mikilli reynslu en hann hefur þjálfað Þór Þorlákshöfn, Tindastól og nú síðast Stjörnuna hérlendis ásamt Orange Academy Ulm í Þýskalandi. Þá hefur hann náð góðum árangri með Þór og Tindastól en hann var valinn þjálfari ársins árið 2022 eftir mjög eftirminnilegt tímabil með síðarnefnda liðinu. Í kjölfarið fór hann á meginlandið og var þar í tvö ár áður en hann fór svo til Stjörnunnar. Hann gerði þar Stjörnuna að Íslandsmeisturum eftir frægt úrslitaeinvígi við Tindastól. Baldur hefur einnig, eins og flestir vita, getið af sér gott orð sem aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins. „Það er mikill happafengur að fá Baldur til liðs við okkur á Álftanesið. Allir körfubotlaunnednur þekkja hvernig hann hefur náð árangri og hverslags reynslu hann býr yfir. Ráðning hans er mikill styrkur fyrir klúbinn og styður við þá vegferð sem klúbburinn er á,“ segir Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Álftaness. „Ég er mjög spenntur fyrir því að taka við liðinu. Það er spennandi verkefni framundan að byggja ofan á það flotta starf sem hér hefur verið unnið og ég hlakka mikið til að hefja samstarfið við leikmennina og fólkið í kringum klúbbinn,“ segir Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira