Gaslýsingar ráðherra Ingibjörg Einarsdóttir skrifar 18. maí 2026 09:31 Núna hef ég upplifað það fjórum sinnum að vera gaslýst opinberlega af ráðherrum. Tvisvar af Guðmundi Inga og núna tvisvar af Ingu Sæland með stuttu millibili. Hvað gerði ég til að verðskulda það? Ég sagði sannleikann um raunverulega stöðu barna með fjölþættan vanda og hvernig staðan á meðferðarúrræðum á Íslandi er í raun. Fyrst sagði Guðmundur Ingi að það væri ekki áfellisdómur yfir kerfinu að foreldrar þyrftu að leita með börnin sín í meðferð til Suður-Afríku. Hann sagði líka opinberlega að meðferðin þar stæðist ekki staðla sem giltu á Íslandi eða á Norðurlöndum, þrátt fyrir að hafa sjálfur viðurkennt að hafa ekki kynnt sér úrræðið í Suður Afríku. Ég get þó staðfest eitt: Börnin eru edrú þar. Það hefur ekki alltaf verið raunin í úrræðum hér heima. Sannleikurinn er sá að á Íslandi eru engin gæðaviðmið til fyrir fíknimeðferð barna. Því má segja að ekkert gæðaeftirlit sé til staðar svo ég átta mig ekki hvaða staðla þær meðferðir eru að uppfylla. Í skýrslu frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála kemur fram að meðferðarúrræði á vegum BOFS hafi aldrei verið árangursmæld. Samt er sífellt talað um „gagnreyndar aðferðir“. Þá spyr ég: Hvernig geta aðferðir kallast gagnreyndar ef árangurinn hefur aldrei verið mældur? Eru þær kannski gagnreyndar í að mistakast? Við erum að setja viðkvæmustu börn landsins í úrræði sem við vitum í raun ekki hvort hjálpa eða valda skaða. Í sömu skýrslu kemur líka fram að innan þessara úrræða séu börn sem ættu í raun heima innan geðheilbrigðiskerfisins vegna alvarlegra geðrænna veikinda - ekki í úrræðum á vegum BOFS. Það er líka áfellisdómur yfir kerfinu. Eins og ég hef áður sagt: Börn eru bókstaflega að brenna inni í kerfi sem á að bjarga þeim. Síðar sagði Guðmundur Ingi að neysla á Stuðlum væri „gamalt vandamál“. Það var einfaldlega ekki rétt, og ég hef sannanir fyrir öðru. Núna kemur Inga Sæland fram í kommentakerfi og segir að það sem ég hafi sagt sé „BULL“ - í caps lock. Hún fullyrðir í fjölmiðlum að enginn biðtími sé eftir meðferð fyrir börn. Þessu er einnig haldið fram á vef Stjórnarráðsins. Ég veit hins vegar um barn í alvarlegri stöðu sem hefur ítrekað endað á bráðamóttöku og hefur nú beðið í tæpan mánuð eftir meðferð. Ég tók það sérstaklega fram að staðan væri mismunandi eftir úrræðum: Það væri ekki biðlisti í langtímameðferð fyrir drengi akkúrat núna en það væri biðlisti í grunnmeðferð. Þrátt fyrir það var því haldið fram aftur og aftur að „engin börn biðu eftir meðferð“. Seinna var frásögninni breytt og sagt að aðeins hefði verið átt við langtímameðferð. Það stenst einfaldlega ekki þegar horft er á fyrri yfirlýsingar. Mér finnst það mjög alvarlegt þegar barnamálaráðherrar fara opinberlega með ósannindi um jafn viðkvæman málaflokk. Það lagar ekkert að neita raunveruleikanum. Þvert á móti grefur það undan foreldrum, börnum og öllum þeim sem reyna að benda á hvað sé raunverulega að gerast. Þetta er málaflokkur þar sem staðan er oft bókstaflega spurning um líf eða dauða. Sýnum þessum börnum og foreldrum þá virðingu að segja sannleikann eins og hann er. Hættum að sópa óþægilegum staðreyndum undir teppið. Það er ekki hægt að laga kerfi sem neitar að horfast í augu við eigin stöðu. Höfundur er móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar