Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. maí 2026 17:13 25 meirihlutar héldur. Vísir/Vilhelm Meirihlutasamstarf flokka hélt í 25 sveitarstjórnum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga en féll í þrettán. Það var helst Sjálfstæðisflokkurinn sem náði að halda meirihlutasamstarfinu. Á höfuðborgarsvæðinu héldu Sjálfstæðismenn hreinum meirihluta í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Þá hlaut listi flokksins í Kópavogi einnig hreinan meirihluta en hann var áður í samstarfi með Framsókn. Ekki liggur fyrir hvort það samstarf haldi áfram. Í Hafnarfirði hélt meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknar. Í Mosfellsbæ féll meirihluti Framsóknar, Samfylkingarinnar og Viðreisnar en munaði einum manni að Sjálfstæðisflokkurinn næði þar hreinum meirihluta. Í Reykjavík féll meirihlutasamstarf Vinstri grænna, Flokks fólksins, Samfylkingarinnar, Pírata og Viðreisnar en telja má líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta eftir að hafa fengið níu kjörna fulltrúa. Sjálfkjörið var í Kjósahrepp. Buðu ekki aftur fram Í Reykjanesbæ voru áður Framsókn, Samfylking og Bein leið en sá síðastnefndi bauð ekki aftur fram. Því hélt meirihlutinn ekki. Í Grindavík áttu Framsókn, Sjálfstæðisflokkurinn og Raddir unga fólksins í samstarfi en Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn geta haldið samstarfinu áfram. Í Sveitarfélaginu Vogum hélt meirihluti E-listans og D-listans og í Suðurnesjabæ hélt meirihlutasamstarf Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Á liðnu kjörtímabili störfuðu þau einnig með Bæjarlistanum, sem bauð ekki fram. Sterk stoð sterk Á Austurlandi í Fjarðabyggð og Múlaþingi halda meirihlutarnir sem samanstanda af Framsókn og Sjálfstæðisflokknum. Óhlutbundin kosning var í Fljótsdalshreppi og í Vopnafjarðarhreppi var O-listi - Sterk stoð sjálfkjörinn. D-listi Sjálfstæðisflokksins hélt meirihluta í Húnabyggð á Norðurlandi vestra og samstarf Sjálfstæðisflokksins með Framsóknarflokknum í Skagafirði og í Húnaþingi vestra. Í Sveitarfélaginu Skagaströnd var Skagastrandarlistinn í meirihluta en bauð ekki fram á ný. Molnar undan KEX-inu Þegar litið er til sveitarfélaganna á Suðurlandi heldur Framfaralistinn meirihlutanum sínum í Flóahreppi, meirihluti T-listans heldur í Bláskógabyggð, í Hrunamannahreppi heldur D-listinn meirihluta og Sjálfstæðismenn halda einnig hreinum meirihluta í Sveitarfélaginu Ölfusi og Sveitarfélaginu Árborg. Á-listinn heldur hreinum meirihluta í Rangárþingi ytra og L-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Vert er að taka fram að þrátt fyrir að fulltrúar í meirihlutasamstarfi hljóti kjör þýðir það ekki að flokkarnir hyggist halda samstarfinu áfram á þessu kjörtímabili. Í Rangárþingi eystra áttu Sjálfstæðismenn og N-listinn í meirihlutasamstarfi en eftir kosningar hefur Sjálfstæðisflokkurinn náð hreinum meirihluta. Í Hveragerði féll meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar og sömuleiðis meirihluti Sjálfstæðisflokksins og KEX-framboðsins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Listi Öflugs samfélags í Skaftárhreppi náði ekki aftur meirihluta. Vestmannaeyingar kusu á þann hátt að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut hreinan meirihluta en á liðnu kjörtímabili áttu Eyjalistinn og Fyrir Heimaey í samstarfi. Í Ásahreppi voru óhlutbundnar kosningar. Í Grímsnes- og Grafningshreppi voru tveir nýir listar í framboði. Miðflokkurinn út á Akureyri Óhlutbundnar kosningar voru í Langanesbyggð og Grýtubakkahreppi en sjálfkjörið í Tjörneshreppi. Í Svalbarðsstrandahreppi var A-listinn með meirihluta eftir kosningarnar árið 2022 en bauð ekki fram núna. Í Þingeyjasveit voru ný framboð. F-listi heldur meirihlutanum í Eyjafjarðarsveit, Gróska heldur ekki hreinum meirihluta í Hörgársveit en í Dalvík heldur meirihluti Sjálfstæðisflokksins og K-listans. Íbúar í Fjallabyggð kusu á þann hátt að meirihluti Jafnaðarmannafélagsins og Sjálfstæðisflokksins heldur. Á Akureyri féll meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins en Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans segir meirihlutaviðræður þegar hafnar milli L-listans, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Auk þess féll meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar í Norðurþingi. Haltu mér, slepptu mér Í Stykkishólmi heldur H-listinn meirihlutanum og sömuleiðis meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Meirihluti Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem var í höndum Framsóknar hlaut ekki kjör og sömuleiðis meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Grundarfjarðarbæ. Óhlutbundnar kosningar voru í Dalabyggð og Eyja- og Miklaholtshreppi en í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 voru óhlutbundnar kosningar í Hvalfjarðarsveit og því enginn meirihluti til að bera saman við. Sjálfkjörið var í Snæfellsbæ. Máttur meyja og manna missa máttinn Að lokum er litið til Vestfjarða þar sem Máttur meyja og manna missti meirihlutann í Bolungarvík en N-listi Nýrrar sýnar í Vesturbyggð hélt sínum. Meirihlutinn féll einnig í Strandabyggð og í Ísafjarðarbæ. Óhlutbundnar kosningar voru í Kaldrananeshreppi og í kosningunum 2022 var það sama uppi á teningnum í Súðavík, Árneshreppi og Reykhólahreppi. Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira
Vert er að taka fram að þrátt fyrir að fulltrúar í meirihlutasamstarfi hljóti kjör þýðir það ekki að flokkarnir hyggist halda samstarfinu áfram á þessu kjörtímabili.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira