„Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 19:30 Stuðningsmenn Celtic ruddust inn á völlinn eftir að Callum Osmand skoraði þriðja mark liðsins gegn Hearts. getty/Craig Foy Hearts hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atburðanna sem áttu sér stað undir lok leiksins gegn Celtic í lokaumferð skosku úrvalsdeildarinnar í dag. Celtic vann leikinn, 3-1, og hrifsaði titilinn úr greipum Hearts.
Eftir að Callum Osmand kom Celtic í 3-1 í uppbótartíma þustu áhorfendur á Celtic Park inn á grasið á leikvanginum. Í yfirlýsingu sem Hearts sendi frá sér eftir leikinn segir að veist hafi verið að leikmönnum og starfsfólki liðsins. Hearts fordæmir atburðina eftir leik og segir að með þeim hafi skoskur fótbolti enn og aftur verið dreginn niður í svaðið. Leikmenn og starfslið Hearts drifu sig burt frá Celtic Park, án þess að tala við fjölmiðla eftir leikinn. Í yfirlýsingu Hearts segir að þetta hafi verið gert til að tryggja öryggi liðsins. Club statement: Events at Celtic Park🔗 https://t.co/cnToHBofbr pic.twitter.com/85sfxkAN4U— Heart of Midlothian FC (@JamTarts) May 16, 2026 Í yfirlýsingunni frá Hearts segir að atburðirnir eftir leikinn í dag séu til rannsóknar hjá félaginu og lögreglunni. Hearts býst við skosk fótboltayfirvöld grípi til harðra refsiaðgerða til að verja heiður leiksins. Hearts var á toppi skosku úrvalsdeildarinnar nánast allt tímabilið og dugði jafntefli í leiknum í dag til að verða meistari í fyrsta sinn í 66 ár. Hearts náði forystunni skömmu fyrir hálfleik en Celtic jafnaði skömmu síðar. Þeir hvítu og grænu skoruðu svo tvö mörk í seinni hálfleik og tryggðu sér titilinn fimmta árið í röð. Celtic fékk afar umdeilda vítaspyrnu í leiknum gegn Motherwell í næstsíðustu umferð sem sigurmark liðsins kom úr. „Þetta er viðbjóðslegt. Við erum með allt á móti okkur. Mér finnst þetta ekki vera víti,“ sagði Derek McInnes, þjálfari Hearts, þegar hann sá dóminn í leik Celtic gegn Motherwell. Úrslit leiksins á Celtic Park í dag og atburðarrásin eftir hann jók enn á óhamingju Hearts sem vakti mikla athygli fyrir framgöngu sína á tímabilinu. Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon leikur með Hearts en missti af lokaspretti tímabilsins vegna meiðsla.
Skoski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Sjá meira