„Ég vildi að hann væri skoskur“ Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 21:37 Ollie Watkins skoraði tvö mörk í kvöld. Getty/Neville Williams John McGinn, fyrirliði Aston Villa, var kampakátur eftir að liðið tryggði sig formlega inn í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð með 4-2 sigri gegn Liverpool í kvöld.
Það eru svo sannarlega spennandi tímar hjá Villa sem á fyrir höndum úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Freiburg í Istanbúl á miðvikudagskvöld. Þar gæti liðið landað fyrsta Evróputitlinum síðan árið 1982. Sigurinn gegn Liverpool sér til þess að Villa-menn fara með gott sjálfstraust í úrslitaleikinn. „Við urðum að klára þetta, við höfum tapað síðustu leikjum í deildinni,“ sagði McGinn en Villa hafði aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur deildarleikjum. Nú eru menn hins vegar sjálfsöruggir. „Við verðum að vera það. Hvernig getum við ekki verið það? Þetta gerir okkur kleift að vera spenntir og njóta miðvikudagsins almennilega.“ Klippa: McGinn eftir sigurinn á Liverpool McGinn var spurður sérstaklega út í Ollie Watkins sem skoraði tvennu í kvöld og vill greinilega sýna Thomas Tuchel að hann eigi skilið sæti í HM-hópnum eftir að hafa ekki verið valinn í enska landsliðshópinn í mars. „Ég vildi að hann væri skoskur,“ sagði Skotinn McGinn léttur í bragði. „Hann var augljóslega vonsvikinn í mars en ef það gaf honum spark í rassinn þá hefur hann svo sannarlega brugðist við á besta mögulega hátt. Við erum svo heppnir að hafa hann, það sem hann hefur gert fyrir þetta félag undanfarin tímabil hefur verið ótrúlegt. Ég held að hann gæti hafa laumað sér um borð í þá flugvél. Vonandi getur hann haldið því áfram í næstu viku,“ sagði McGinn, staðráðinn í að njóta á miðvikudaginn. „Stuðningsmennirnir verða að njóta þess. Við erum taldir örlítið sigurstranglegri en í úrslitaleikjum getur allt gerst. Við verðum að halda einbeitingu. Þetta er það sem mann dreymir um þegar maður er ungur. Maður verður að njóta þess en líka að hafa gaman.“
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira