Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar 15. maí 2026 12:20 Á opnum fundi nýlega ræddi ég að við ættum að horfa jákvæðari augum á að bæta við mannauði í þjónustu sveitarfélagsins. Fleiri stöðugildi eru auðvitað ekki sjálfkrafa lausn við öllum okkar vandamálum, en við teljum að fólkið sjálft sé grunnurinn að góðu samfélagi. Þar nýtist fjármagnið best og þar á það heima. Þegar við styrkjum skóla, félagsþjónustu, frístundir eða stuðning við fjölskyldur erum við ekki að blása út báknið, heldur erum við að fjárfesta í fólkinu sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi. Fólkinu sem sér um börnin okkar, tekur á móti þeim sem þurfa aðstoð og grípa þau sem annars gætu misst fótfestuna. Kannski horfi ég öðruvísi á þetta vegna þess bakgrunns sem ég hef úr verkalýðshreyfingunni, en þar hef ég séð hvað gerist þegar fólk nær ekki endum saman þó það vinni fullt starf. Ég hef séð ungt fólk gera allt „rétt“ og samt upplifa að það dugi ekki til. Fólk sem vill flytja heim, stofna fjölskyldu, kaupa sér íbúð eða einfaldlega fá tækifæri til að byggja sér líf en kemur ítrekað að lokuðum dyrum. Það hefur mótað mína pólitík meira en nokkuð annað. Ég trúi því ekki að hlutverk sveitarfélags sé bara að halda bókhaldinu í lagi og vona það besta. Sveitarfélag á að skapa aðstæður þar sem fólk á sér framtíð; þar sem ungt fólk getur sest að, foreldrar finna öryggi og eldra fólk fær þjónustu með reisn. Þar sem það á ekki að skipta máli hvort þú eigir mikið eða lítið á bankabókinni, þú eigir alltaf rétt á góðu lífi. Það þýðir ekki að það skipti ekki máli að halda vel utan um rekstur sveitarfélagsins, það er mikilvægt. Þetta snýst um forgangsröðun. Við í Samfylkingunni viljum forgangsraða í þágu fjölskyldunnar, í öllum sínum formum. Þess vegna höfum við talað svona mikið um húsnæði, leik- og grunnskóla, samgöngur, menningu og aðgengi að þjónustu. Af því að þetta eru þau mikilvægu atriði sem stjórna því hvort fólk geti raunverulega byggt sér gott líf hér. Og hér eru tækifærin svo sannarlega til staðar. Við sem erum í forystu Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ erum ný rödd á vettvangi stjórnmálanna í sveitarfélaginu. Með fjölbreytta reynslu og ferska sýn á það hvernig sveitarfélag á að vinna með fólkinu sínu. Ég er sannfærð um að það skipti máli núna. Ég fór í framboð af því að ég trúi því að Ísafjarðarbær geti verið samfélag þar sem fleiri sjá bjarta framtíð fyrir sér, þar sem fólk og fyrirtæki fá að blómstra. Og ég vona að við fáum tækifæri til að gera það saman. Setjum X við S. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar