Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar 15. maí 2026 11:02 Í langan tíma hefur undirritaður haft bæði gagn og ánægju af því að rýna í tölulegar upplýsingar og byggja ákvarðanatöku á traustum gögnum. Við skoðun á mælaborði Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa ýmis athyglisverð sannindi komið í ljós. Mýtan um skattalækkanir Það er algengur misskilningur að flokkar sem kenna sig við skattalækkanir séu sjálfkrafa verndarar veskisins. Ef við rýnum í tölurnar hjá Akraneskaupstað á þessu kjörtímabili þá er raunveruleikinn því miður allt annar en skilaboðin sem dynja á okkur frá flokkunum sem hafa stjórnað bænum síðustu tvö kjörtímabil. Á sama tíma og álögur á íbúa og fyrirtæki hafa rokið upp hafa skuldir bæjarins hækkað um heil 131% á liðnu kjörtímabili. Fyrir þá sem treysta því að atkvæði greitt flokkum sem lofa lægri sköttum skili sér í léttari greiðslubyrði, þá eru tölurnar á Akranesi köld tuska í andlitið. Á mælaborði Sambands íslenskra sveitarfélaga má sjá að álögur gegnum fasteignaskatta hafa aukist um 8% fyrir íbúðarhúsnæði á Akranesi og tæp 16% fyrir atvinnuhúsnæði á núverandi kjörtímabili. Það er gríðarleg aukning sem tekin er beint úr vasa bæjarbúa og á meðan sveitarfélögin í kringum okkur hafa lækkað þessa sömu skatta til að koma til móts við hækkandi fasteignamat hafa bæjaryfirvöld á Akranesi gert hið gagnstæða. Fyrir vikið hefur bein skattheimta Akraneskaupstaðar í gegnum fasteignaskatta, þ.e. tekjur bæjarins af þeim sköttum, aukist um 67% á kjörtímabilinu. Skuldahlutfallið lækkað með auknum álögum á íbúa í stað þess að greiða niður skuldir Meirihlutinn stærir sig gjarnan af því að skuldahlutfallið fari lækkandi en það er því miður hrein tálsýn. Lækkunin er nefnilega ekki tilkomin vegna þess að skuldir hafi verið greiddar niður heldur vegna þess að tekjurnar hafa verið keyrðar upp með aukinni skattheimtu á meðan vaxtaberandi skuldir standa í stað. Það er nefnilega auðvelt að láta hlutföll líta vel út á pappír þegar íbúarnir eru látnir borga brúsann. Það er einfaldlega ósjálfbært að herða stöðugt að íbúum og hlaða upp skuldum án þess að það skili sér í sambærilegum gæðum í þjónustu. Gull og grænir skógar Nú þegar kosningar nálgast er lofað gulli og grænum skógum úr öllum áttum og miðað við vinnubrögð síðustu tveggja kjörtímabila er ljóst hvernig á að fjármagna þau fögru loforð: íbúum og fyrirtækjum Akraness verður sendur reikningurinn. Tækifærin í atvinnulífinu sem flokkunum þremur er tíðrætt um eru vissulega til staðar. En ætli Akranes að sækja hingað fyrirtæki þá verða líka aðgerðir að fylgja orðum. Lykillinn í því er raunverulega að lækka álögur á fyrirtæki en ekki bara tala um það. Væri ekki gaman ef flokkar sem tala um skattalækkanir myndu raunverulega gera það? Gögnin sýna svo ekki verður um villst að það er þörf á ferskri rödd með nýja nálgun. Þess vegna væri gaman að setja X við C laugardaginn 16. mars. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar