„Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. maí 2026 17:00 Viðar Örn hefur fetað veg edrúmennskunar síðustu misseri en steig út af sporinu. umf selfoss Viðar Örn Kjartansson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann axlar fulla ábyrgð á sínum gjörðum sem leiddu til þess að hann var settur í tveggja leikja agabann hjá liði Selfoss í Lengjudeild karla í fótbolta.
Greint var frá tveggja leikja agabanni Viðars Arnar í gær. Hann missti af leik Selfoss við Hvíta Riddarann um helgina og Óli Stefán Flóventsson, þjálfari liðsins, sagði Fótbolta.net að Viðar myndi einnig missa af leik helgarinnar gegn Kormáki/Hvöt. Viðar Örn opnaði sig fyrr í vetur um vandamál sem hann hefur glímt við tengt áfengis- og spilafíkn. Í yfirlýsingu sem birtist á miðlum Selfoss axlar Viðar Örn fulla ábyrgð. Hann segir að þann 2. maí síðastliðinn hafi hann tekið hliðarspor út af þeim vegi sem hann hafði fetað síðustu mánuði. Einbeitingin sé og verði áfram á þeirri góðu vinnu sem hann hafi unnið. Hliðarsporið muni ekki breyta þeirri vegferð eða skilgreina þá vinnu. Kveðst hann hlakka til að mæta aftur á völlinn í vínrauðri treyju Selfoss. Yfirlýsingu Viðars má lesa í heild sinni hér: „Eftir leikinn á móti KFA þann 2.maí sl. tók ég hliðarspor útaf þeim vegi sem ég hef fetað síðustu mánuði. Ég tek fulla ábyrgð á mínum gjörðum og tek nú afleiðingunum og kem sterkari til baka. Fókusinn minn er áfram á þeirri góðu vinnu sem ég hef verið í – með liðinu, félaginu, fjölskyldu og vinum. Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á eða skilgreina þá vinnu sem hefur átt sér stað síðustu mánuði á nokkurn hátt. Ég er ekkert eðlilega spenntur að mæta á völlinn aftur í vínrauðu, hjálpa liðinu og gefa allt mitt fyrir Selfoss-merkið. Áfram Selfoss!“ VIÐAR ÖRN KJARTANSSON
UMF Selfoss Lengjudeild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira