Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 13:47 Tonda Eckert er stjóri Southampton Vísir/Getty „Ertu svindlari?“ var spurning sem Tonda Eckert, stjóri Southampton fékk á blaðamannafundi eftir að lið hans tryggði sér farmiða í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Lið hans er sakað um njósnir á æfingum andstæðings síns.
Því hefur verið haldið fram að einstaklingur úr starfsteymi Southampton hafi njósnað um lið Middlesborough í aðdraganda einvígis liðanna í undanúrslitum umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Er umræddur einstaklingur sagður hafa falið sig í runna við æfingasvæði Middlesborough og hefur málið fengið viðurnefnið Spygate. Málið er til rannsóknar hjá EFL, samtök er standa að neðri deildum Englands, og getur enn hvað sem er gerst fyrir sjálfan úrslitaleik umspilsins þrátt fyrir úrslit gærkvöldsins. Eftir markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna vann Southampton 2-1 sigur í gær og tryggði sér sæti í úrsltaleiknum gegn Hull á Wembley þann 23.maí næstkomandi. Blaðamannafundir knattspyrnustjóra liðanna voru alls ekki sambærilegir eftir leik í gær. Niðurbrotinn stjóri Middlesborough, Kim Hellberg, sagði málið skammarlegt. „Ég hef starfað í fimmtán ár sem þjálfari og reynt að komast í ensku úrvalsdeildina. Það hefur verið minn draumur,“ sagði Hellberg á blaðamannafundi eftir leik. „Þetta mál er skammarlegt. Gerir mig mjög sorgmæddann „Ertu svindlari?“ Saumað var að Tonda Eckert, stjóra Southampton, og batt blaðamannafulltrúi Southampton enda á fundinn er Tonda var spurður beint út í það hvort hann væri svindlari? Southampton's Tonda Eckert walked away from his press conference early after being asked if he is a 'cheat' following the Saints' 'spygate' saga that surrounds their play-off clash with Middlesbrough. pic.twitter.com/qsc8rjnZ3n— Sky Sports News (@SkySportsNews) May 13, 2026 „Sýndu smá virðingu,“ mátti heyra blaðamannafulltrúa Southampton segja er Eckert stóð upp og yfirgaf fundinn. Southampton hefur hafið innri skoðun á málinu og segist í góðu samstarfi við EFL.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Fleiri fréttir City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Sjá meira