„Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 16:31 Gísli Eyjólfsson var meðal þeirra leikmana sem ÍA sótti fyrir tímabilið. vísir/guðmundur Að mati sérfræðinga Stúkunnar er ÍA enn að leita að sínu einkenni sem lið. Miklar væntingar voru gerðar til Skagamanna fyrir tímabilið en þeir hafa aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í Bestu deild karla.
ÍA laut í lægra haldi fyrir nýliðum Keflavíkur, 1-3, á heimavelli á föstudaginn var. Skagamenn eru með fimm stig í 10. sæti Bestu deildarinnar. Baldri Sigurðssyni líst ekki alveg nógu vel á stöðuna hjá ÍA. „Þetta eru klárlega vonbrigði fyrir alla, og sérstaklega þá, að vera ekki með fleiri stig. Það sem mér finnst horfandi á þennan leik og horfandi á fleiri leiki hjá ÍA að þeir eru ekki enn búnir að finna flæðið sitt. Þetta er allt svo stirt. Við tókum eftir því að Lárus Orri [Sigurðsson, þjálfari ÍA] talaði um það að þeir hefðu mögulega mátt spila hraðar í fyrri hálfleik. Þeir voru miklu meira með boltann,“ sagði Baldur sem fór svo yfir breytingarnar sem ÍA hefur gert á milli leikja í sumar. Klippa: Stúkan - umræða um ÍA Honum fannst sóknarleikur Skagamanna gegn Keflvíkingum vera bitlítill og að þeir ættu eftir að finna réttu blönduna. „Ef þú tekur þetta allt saman í eitt þá er eins og mönnum líði ekki alveg nógu vel. Þetta er leynikryddið sem þeir þurfa að finna. Hvernig ætlum við að hafa þetta þannig að öllum líði vel og fíli sig inni á vellinum? Það er það sem vantar,“ sagði Baldur. Mjög þungur dagur Halldór Árnason segir að ÍA sé enn í leit að sínu einkenni eftir breytingar vetrarins. „Þeir eru bara ennþá að leita að nýju DNA. Þeir eru bara pínu leikstílslausir eins og staðan er akkúrat núna. Á sama tíma í fyrra voru þeir með fleiri stig, mjög skýran leikstíl og skýrt Skaga-DNA. En með þessum nýju leikmönnum, og þeir sóttu frábæra leikmenn, eru þeir bara ennþá að leita að því hvernig þeir koma þeim í hlutverk,“ sagði Halldór. „Þetta voru erfiðar aðstæður og allt það en þetta var mjög erfiður sóknarleikur hjá ÍA. Það er nokkrum sinnum sem menn eru bara að sparka boltanum út af og þetta var einhvern veginn mjög þungur dagur.“ Næsti leikur ÍA er gegn Grindavík í sextán liða úrslitum Mjólkurbikarsins annað kvöld. Næsti deildarleikur Skagamanna er á móti nýliðum Þórs á Akureyri á sunnudaginn. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla ÍA Stúkan Tengdar fréttir „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Sérfræðingar Stúkunnar telja að KR-ingurinn Finnur Tómas Pálmason hafi sloppið vel þegar hann togaði í Stjörnumanninn Örvar Eggertsson innan vítateigs í uppbótartíma í leik liðanna í Bestu deild karla á föstudaginn. 11. maí 2026 23:15 Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum ÍA og Keflavík eru á svipuðum slóðum í neðri hluta Bestu deildarinnar og ætla sér að ná í þrjú stig í kvöld þegar liðin mætast á Akranesi. 8. maí 2026 23:37 Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
„Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Sérfræðingar Stúkunnar telja að KR-ingurinn Finnur Tómas Pálmason hafi sloppið vel þegar hann togaði í Stjörnumanninn Örvar Eggertsson innan vítateigs í uppbótartíma í leik liðanna í Bestu deild karla á föstudaginn. 11. maí 2026 23:15
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum ÍA og Keflavík eru á svipuðum slóðum í neðri hluta Bestu deildarinnar og ætla sér að ná í þrjú stig í kvöld þegar liðin mætast á Akranesi. 8. maí 2026 23:37