Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Kristján Már Unnarsson skrifar 12. maí 2026 07:57 Árni Hermannsson er framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic. Sigurjón Ólason Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur tekið að sér að fljúga áætlunarflug á lúxusþotum yfir Atlantshafið í sumar. Félagið mun einnig á sömu þotum flytja knattspyrnulandslið nokkurra þjóða á heimsmeistarakeppnina.
Fjallað var um verkefnin í fréttum Sýnar en hluti af Boeing 757-flota Icelandair er rekinn í gegnum systurfélagið Loftleiðir Icelandic. Þoturnar eru yfirleitt merktar þeim viðskiptavinum sem kaupa þjónustuna til leiguflugs, eins og National Geographic. Þá er gjarnan farið í lúxusferðir á framandi staði, meira að segja á Suðurpólinn. Þessi vél er merkt kaupanda þjónustunnar, National Geographic.Arnar Halldórsson En núna ætla Loftleiðamenn að sinna áætlunarflugi og það á fjölförnum flugleiðum. „Við erum að fara að fljúga fyrir franskt flugfélag í sumar. Annars vegar allan júní og hins vegar allan september. Áætlunarflug á 52 sæta Boeing 757,“ segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Tveir leggir verða flognir; milli Parísar og New York og milli Mílanó og New York. „Fimmtíu til sextíu fram og til baka flug í júní og eins í september.“ Í áætlunarflugi eru 184 sæti um borð í 757-þotum Icelandair. En í þessum ferðum fyrir La Compagnie verða eingöngu lúxussæti og með viðeigandi þjónustu. Í flugvélinni eru aðeins höfð 52 sæti um borð.Loftleiðir Icelandic „Þeir fljúga eingöngu á „bisnessklassa“ vélum á milli Evrópu og New York. Þannig að þetta er þeirra módel og við erum bara að hjálpa þeim,“ segir Árni. Í vetur hafa Loftleiðir flutt knattspyrnulið í leiki vegna Meistaradeildar Evrópu. Frægar fótboltastjörnur verða einnig um borð í sumar. Vel er gert við farþegana um borð.Loftleiðir Icelandic „Við fljúgum með nokkur landslið á HM í sumar. Við höfum á undanförnum mánuðum verið mjög aktívir í að fljúga með bæði félagslið og landslið í svona stuttar ferðir. Við höfum verið með flest stærstu liðin í Englandi.“ -Verðið þið með íslenskar áhafnir að einhverju leyti? „Eingöngu, já. Það eru flugmenn og flugfreyjur, eða flugliðar,“ svarar framkvæmdastjóri Loftleiða.
Icelandair Flug HM 2026 í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Flugþjóðin Tengdar fréttir Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, er komið með þrjár þotur sem eingöngu sinna lúxusflugi með forríka ferðamenn. Dæmigerð þriggja vikna hnattferð kostar 25 milljónir króna á mann en þá er líka allt innifalið. 15. apríl 2024 23:00 Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Verulegar efasemdir voru innan stjórnar Flugleiða á níunda áratugnum um hvort rétt væri að halda áfram flugi til Ameríku. Meirihluti stjórnarinnar hallaðist að því að félagið einbeitti sér að Evrópuflugi og að Ameríkuflugi yrði hætt. 28. mars 2025 22:55 Gullaldarárin þegar flugið varð stór uppspretta þjóðartekna Loftleiðabyggingarnar á Reykjavíkurflugvelli eru helsta táknmynd þess peningaflæðis sem fylgdi sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan flugmarkað á árunum milli 1960 og ‘70 og gerði flugið að einum þýðingarmesta þætti efnahagslífsins. 22. mars 2025 16:44 Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, er komið með þrjár þotur sem eingöngu sinna lúxusflugi með forríka ferðamenn. Dæmigerð þriggja vikna hnattferð kostar 25 milljónir króna á mann en þá er líka allt innifalið. 15. apríl 2024 23:00
Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Verulegar efasemdir voru innan stjórnar Flugleiða á níunda áratugnum um hvort rétt væri að halda áfram flugi til Ameríku. Meirihluti stjórnarinnar hallaðist að því að félagið einbeitti sér að Evrópuflugi og að Ameríkuflugi yrði hætt. 28. mars 2025 22:55
Gullaldarárin þegar flugið varð stór uppspretta þjóðartekna Loftleiðabyggingarnar á Reykjavíkurflugvelli eru helsta táknmynd þess peningaflæðis sem fylgdi sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan flugmarkað á árunum milli 1960 og ‘70 og gerði flugið að einum þýðingarmesta þætti efnahagslífsins. 22. mars 2025 16:44
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. 18. september 2024 19:44