Tölum meira um náttúruvernd Dóra Þorleifsdóttir skrifar 10. maí 2026 18:16 Baðlón, hótel, smáhýsi í hrönnum. Það er ekkert lát á uppbyggingunni í ferðaþjónustu hér á landi og ég upplifi mig svolítið sem máttlausan áhorfanda að herlegheitunum og get lítið gert til að grípa inn í þessa hröðu atburðarás. Síðast þegar mér leið svona var rétt fyrir efnahagshrunið. Þá horfði ég á mikinn og ógurlegan hraða og uppgang í íslensku samfélagi og enginn vildi heyra raddir þeirra sem vöruðu við. Svo kom skellurinn og afleiðingarnar hörmulegar. Nú er komin ný kynslóð útrásarvíkinga og náttúra Íslands er söluvaran. Vistkerfi, náttúra, íbúar, fegurð sveitanna og ásýnd þorpanna virðist ekki skipta neinu máli. Uppbygging í nafni „atvinnusköpunar“, gróði og skammtímahugsun virðist vera það eina sem mark er tekið á. Það er eins og ferðaþjónustan, atvinnugrein sem enginn efast um að hafi verið til góðs fyrir íslenskan efnahag, svo því sé haldið til haga, rúlli stjórnlaust áfram og enginn virðist geta gripið í taumana. Við erum nú þegar orðin fórnarlömb eigin velgengni og það skrifast á algjört stefnuleysi stjórnvalda og linkindar sveitarstjórna þegar kemur að skipulagsmálum. Þessi lítt snortna náttúra okkar, sem ferðamennirnir sækja svo mikið í, er undir miklu álagi, m.a. af völdum fjöldaferðamennsku, og hnignun náttúrunnar er eitthvað sem við ættum öll að vera að tala um. Tómas Grétar Gunnarsson og Lilja Jóhannesdóttir birtu greinina Mikilvægi og ábyrgð sveitarfélaga við verndun líffræðilegrar fjölbreytni í Bændablaðinu fyrir tveimur árum þar sem þau hvetja einstaklinga og sveitarstjórnir til að vanda vel til verka. „Ákvarðanir um landnotkun sem teknar eru hjá sveitarfélögum ráða því miklu um hvernig tekst að sporna við hnignun náttúrunnar og á sama tíma hvernig lífsgæði verða í framtíðinni, en fjöldi rannsókna sýnir að fólk sem hefur greiðan aðgang að lítt spilltri náttúru lifir betra og innihaldsríkara lífi sem er lykill að farsælu samfélagi.“ Þau leggja til nokkur mikilvæg atriði sem sveitarstjórnir geta litið til eins og að lágmarka þætti sem hafa neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni, endurheimta og varðveita votlendi, huga að þróun byggðar, koma í veg fyrir landbruðl og tryggja vernd svæða þar sem finnast tegundir eða búsvæði með hátt verndargildi. „Mikilvægt er að nálgast vandann á heildrænan hátt. Þannig er afar brýnt að samstilla viðbrögð við tapi líffræðilegrar fjölbreytni og hamfarahlýnun eins og Sameinuðu þjóðirnar leggja nú ríka áherslu á. Á fundi þeirra um líffræðilega fjölbreytni í Montréal 2022 (COP15) undirrituðu 196 þjóðir, Ísland þar á meðal, tímamótasamning um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Samningurinn felur í sér sundurliðun markmiða til að ná tökum á vandanum, m.a. að árið 2030 njóti 30% af láði og legi verndar og að maðurinn lifi í sátt við náttúru jarðar árið 2050. Við þetta tækifæri sagði aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, að þjóðir heims væru að fremja sjálfsmorð með umgengni sinni við náttúruna („we are committing suicide by proxy“).“ Á Laugarvatni vöknuðum við upp við vondan draum er við heyrðum af áformum um risavaxna hótelbyggingu við vatnsbakkann. Við mótmæltum að sjálfsögðu kröftuglega og það er ljóst að þetta er ekki í samræmi við núgildandi atvinnumálastefnu uppsveitanna sem hefur m.a. það markmið að auka fjölbreytileika starfa. Þetta er heldur ekki í samræmi við yfirlýsingu þegar heimsmarkmiðin voru innleidd í stefnuskrá sveitarfélagsins og okkur falið að varðveita náttúruperlur landsins, m.a. Þingvelli, Geysi, Gullfoss og Laugarvatn. „Sveitarfélagið ætlar að nýta Heimsmarkmiðin og sjálfbæra þróun til þess að varðveita þessar náttúruperlur og fólkið sem þar býr.“ https://www.blaskogabyggd.is/is/moya/news/blaskogabyggd-innleidir-heimsmarkmid-sameinudu-thjodanna Vistkerfið, fuglalífið, íbúarnir, ásýnd þorpsins, aukin umferð, fráveitumál og auðvitað bara sú staðreynd að við viljum fá að hafa áhrif á framtíðarsýn þorpsins okkar hafði einnig stór áhrif á að við létum heyra svona hressilega í okkur. En Laugarvatn er ekki eini staðurinn í sveitarfélaginu þar sem íbúar standa frammi fyrir mikilli framkvæmdargleði því byggingarframkvæmdir eru fyrirhugaðar á Engjaholti, sem tekur til lands Fells í Bláskógabyggð. Íbúar í nágrenninu hafa mótmælt og safnað undirskriftum en eins og svo oft áður, þá á náttúran sér ekki nógu sterkan málsvara og þessi áform virðast vera komin langt á veg. Forsvarsmenn undirskriftarlistans skrifuðu m.a.: „Áformaðar eru stórfelldar framkvæmdir á svæðinu (bygging 100 gistihúsa, hótels, baðlaugar, 15–20 hús til útileigu eða íbúðar-/starfsmannahúsa. Gert er ráð fyrir að daglegur gestafjöldi verði 400 til 1.000 manns). Umferð á svæðinu mun aukast verulega. Fyrirhugaðar framkvæmdir munu valda alvarlegri röskun á náttúru og fela í sér aukna hættu á mengun, ljósa- og hljóðmengun, og ógn við vatnsból. Enginn opinn kynningarfundur hefur verið haldinn fyrir íbúa eða hagsmunaaðila og ábendingar og mótmæli hafa hlotið lítil sem engin viðbrögð. Við krefjumst þess að Engjaholt þróist með náttúruvernd, menningarvernd og mannúð að leiðarljósi en ekki með hugmyndum um skammtímahagnað sem stefna náttúru og samfélagi í hættu.“ Textann má sjá hér Mikilvægt er einnig að benda á að þessar fyrirhuguðu framkvæmdir eru alveg ofan í eina friðaða svæði uppsveitanna, Pollenginu, sem er handan við ána. Þær eru svo nálægt að það má sterklega gera ráð fyrir að þær muni hafa neikvæð áhrif inn á svæðið. Pollengi og Tunguey voru friðlýst sem friðland árið 1994 með það markmið að vernda votlendi og fuglalíf. Náttúruverndarstofnun - Pollengi og Tunguey Íbúar í nágrenni við þessi risavöxnu áform reyna að láta í sér heyra en tala fyrir daufum eyrum. Einnig má spyrja sig hvernig þessi áform samræmist atvinnumálastefnu sveitarfélagsins og ósk íbúa um fjölbreyttari störf. Uppbygging, hagvöxtur, afleidd störf er það sem ég heyri alltaf þegar ég nefni vistkerfi, votlendi, náttúruvernd. Þótt ég sé náttúruverndarsinni og hafi stórar áhyggjur af hningnun náttúrunnar þá er ég ekki á móti uppbyggingu. Ég vil bara sjá uppbygginguna verða til í samráði við íbúa og í meira jafnvægi og sátt við náttúruna. Uppbyggingin verður líka að vera í takti við það sem sveitarstjórnin sjálf hefur ákveðið að vinna eftir hvort sem það eru heimsmarkmiðin, sjálfbær þróun eða atvinnumálastefna uppsveitanna. Ekki er lengur hægt að þagga niður í gagnrýnisröddum með því að tala um að þetta sé atvinnuskapandi því skv. prófessor í nýsköpunarhagfræði getur Ísland ekki haldið áfram á þessari vegferð: „Verg landsframleiðsla á mann hefur vaxið hægar á Íslandi en í samanburðarlöndum. Langflest ný störf á almennum markaði hafa orðið til í greinum með framleiðni undir meðaltali. Fjármunaeign atvinnulífsins á hvern starfandi hefur jafnvel dregist saman. Þetta mynstur er ekki sjálfbært. Ísland getur ekki byggt framtíðarhagvöxt á sífellt auknu framboði vinnuafls. Næsta vaxtarskeið verður að koma annars staðar frá.“ Mariana Mazzucato - Að nýta atvinnustefnu til að móta hagvöxt. Við þurfum fjölbreyttara atvinnulíf og við þurfum að setja náttúruvernd í fyrsta sæti. Við skuldum okkur sjálfum og komandi kynslóðum að gera betur. Höfundur er íbúi í Bláskógabyggð og skipar 7. sæti á Þ-listanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar