Það er ekkert „við og þið“, aðeins eitt samfélag Viðar Marinósson skrifar 8. maí 2026 16:30 Umræða um búsetu og skipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið áberandi að undanförnu. Sú umræða er mikilvæg enda snýr hún að framtíð sveitarfélagsins, uppbyggingu þess og þjónustu við íbúa. Til þess að umræðan verði málefnaleg þarf hún að byggja á staðreyndum og heildstæðri sýn á samfélagið eins og það er í dag. Í sveitarfélaginu býr fjölbreyttur hópur fólks. Sumir eru með skráð lögheimili en aðrir með ótilgreint lögheimili, sem Þjóðskrá hefur staðfest að sé lögmæt skráning. Samkvæmt 2. og 4. gr. laga um lögheimili nr. 80/2018 njóta þessir hópar sambærilegra réttinda og samkvæmt 12. og 13. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 ber sveitarfélaginu að veita þeim þjónustu á sama grundvelli. Báðir hópar leggja jafnframt sitt af mörkum til reksturs sveitarfélagsins með fasteignagjöldum, þjónustugjöldum og útsvari. Gögn fyrir árið 2025 sýna skýra mynd af tekjugrunni sveitarfélagsins. Af 972 milljónum króna í fasteignasköttum komu 603 milljónir frá frístundahúsum, eða rúmlega 62%. Útsvarstekjur námu 427 milljónum króna þar af greiddu íbúar með ótilgreint lögheimili um 90 milljónir og þjónustugjöld frá frístundahúsum um 130 milljónum. Samanlagt lögðu eigendur frístundahúsa og íbúar með ótilgreint lögheimili til um 823 milljónir króna í tekjur sveitarfélagsins. Árið 2026 má gera ráð fyrir að þær tekjur fari vel yfir 900 milljónir króna. Hagkerfi Grímsness- og Grafningshrepps. Stór hluti atvinnulífs sveitarfélagsins byggir jafnframt á þjónustu við frístundahús og eigendur þeirra. Tekjur tengdar þessum hópi eru því ein af meginstoðum þeirrar uppbyggingar og þjónustu sem sveitarfélagið stendur fyrir. Margt bendir til þess að raunfjöldi þeirra sem búa í frístundahúsum sé meiri en opinber skráning gefur til kynna. Þótt um 150 einstaklingar séu skráðir með ótilgreint lögheimili í upphafi árs 2026 er líklegt að raunfjöldinn sé nær 200–300 manns. Sá hópur sem ekki er skráður í sveitarfélaginu greiðir útsvar annars staðar og þar með missir sveitarfélagið af tekjum sem gætu stutt við frekari uppbyggingu. Samkvæmt reglum Þjóðskrár þarf sá sem skráir ótilgreint lögheimili að sýna fram á raunverulega búsetu í sveitarfélaginu. Það er því ekki sveitarfélagsins að ákveða hverjir kjósa að eiga þar lögheimili sitt, heldur ráðast slíkar skráningar af lögum og reglum. Hlutverk sveitarfélagsins er hins vegar að bregðast við þróun samfélagsins og tryggja að þjónusta og innviðir þróist í takt við raunverulegan íbúafjölda. Aðsetursskráning og skipulag. Borið hefur á misskilningi hjá A-listanum varðandi stöðu þeirra íbúa sem skrá lögheimili sitt ótilgreint í sveitarfélaginu. Sá misskilningur virðist byggja á skorti á kynningu á málaflokknum og takmörkuðum skilningi á afstöðu Þjóðskrár, ráðuneyta og gildandi laga, þar á meðal laga nr. 80/2018 og nr. 40/1991. Íbúar með ótilgreint lögheimili eru ekki að óska eftir breytingu á skipulagi frístundahúsa í íbúðarhús nema í örfáum tilfellum. Um er að ræða svokallaða B-skráningu eða aðsetursskráningu þar sem deiliskipulag helst óbreytt, ásamt takmörkunum á ákveðinni þjónustu eins og snjómokstri eða sorphirðu heim að húsi. Þetta snýst því ekki um að veikja skipulagsvald sveitarfélagsins heldur um að bregðast við raunverulegri búsetuþróun. Fjölgun íbúa, auknar tekjur. Það er markmið allra sveitarfélaga að laða að nýja íbúa, efla atvinnulíf og skapa grundvöll fyrir frekari uppbyggingu. Með fjölgun íbúa skapast tækifæri til sterkari þjónustu, aukinnar atvinnusköpunar og frekari uppbyggingar á borð við verslunar- og þjónustulóðir á Borg. Meginatriðið er einfalt: kostnaður sveitarfélagsins vegna aukins íbúafjölda er í grunninn sá sami hvort sem fólk býr í íbúðarhúsi, á jörð eða í frístundahúsi. Sá kostnaður er jafnframt fjármagnaður með auknum útsvarstekjum og öðrum tekjum sem nýir íbúar skila sveitarfélaginu. Nýir íbúar verða því ekki byrði heldur þátttakendur í að styrkja samfélagið. Samfélagið getur staðið undir frekari uppbyggingu innviða, svo sem skóla, leikskóla og betri lausnum í skólaakstri. Reynslan frá öðrum sveitarfélögum sýnir að hægt er að finna raunhæfar lausnir sem taka mið af þörfum barna og fjölskyldna í dreifbýli. Sameiginleg framtíð og jákvæð afstaða. A-listinn virðist hins vegar ekki ætla að bregðast við þeirri þróun sem þegar á sér stað í sveitarfélaginu. Afstaðan sem þar birtist einkennist fremur af stöðnun en framtíðarsýn, þar sem áhersla er lögð á að draga upp neikvæða mynd í stað þess að vinna að raunhæfum lausnum og sameiginlegri sýn fyrir samfélagið. Ábyrg stjórnsýsla felst í því að leita leiða og skapa lausnir, ekki að mála skrattann á vegginn áður en möguleikar hafa verið skoðaðir. Sveitarfélagið þarf á samstöðu, framsýni og ábyrgri uppbyggingu að halda, ekki hræðsluáróðri eða átökum sem skipta íbúum í fylkingar. Verkefnið fram undan er að byggja upp sterkt samfélag sem tekur mið af raunveruleikanum og nýtir þau tækifæri sem felast í fjölbreyttari búsetu og fjölgun íbúa. Það er markmið Betri sveitar, Ö-listans, að styðja við samfélagið með ábyrgri uppbyggingu, jafnræði og sanngirni fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Það er ekkert „við og þið“. Það er aðeins við öll saman. Höfundur skipar 4. sæti á Ö-listanum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Snædís Valsdóttir,Aðalsteinn Hjartarson Skoðun Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson Skoðun „Alþingi sameinast“ Margrét Kristín Blöndal Skoðun BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir Skoðun Málverkið tilbúið, en hver hélt á penslinum? Halla Björk Vigfúsdóttir Skoðun Tónlistar(niðurskurðar)borgin Reykjavík Ásta Kristín Pjetursdóttir Skoðun Sundurtætt eftirlit – opið bréf til alþingismanna Sesselja María Sveinsdóttir Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Fáum samninginn á borðið Greta Lind Kristjánsdóttir Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnavalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnavalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar Skoðun „Hrútskýring“ á fiskveiðióstjórn Íslands Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar Skoðun Málverkið tilbúið, en hver hélt á penslinum? Halla Björk Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Síðasti sjéns að mótmæla varðhaldi saklausra barna Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Undir yfirborðinu leynist framtíðin Silja Elvarsdóttir,Hafdís Hanna Ægisdóttir skrifar Skoðun Tónlistar(niðurskurðar)borgin Reykjavík Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Hugboð, tilfinningar eða upplýst afstaða – útgáfuréttur óviss Berglind Hilmarsdóttir skrifar Skoðun „Alþingi sameinast“ Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit er nærþjónusta — ekki skrifborðsæfing Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Snædís Valsdóttir,Aðalsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Ný jafnréttislög kalla á aukið aðhald og skýra framtíðarsýn Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Næstum fjórir af hverjum tíu Íslendingum lesa skilaboð undir stýri Gunnar Geir Gunnarsson,Lára Hrafnsdóttir skrifar Skoðun Er ESB í alvöru svona vinsælt? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um hvað er raunverulega verið að spyrja? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Sundurtætt eftirlit – opið bréf til alþingismanna Sesselja María Sveinsdóttir skrifar Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar Skoðun Fáum samninginn á borðið Greta Lind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Króna eða evra? Umræða sem á skilið meira en slagorð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Her- og gervimenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Greinarstúfur um tillögur stjórnavalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnavalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun BRCA arfberar eiga ekki að greiða fyrir lífsnauðsynlegt áhættueftirlit Hrefna Eyþórsdóttir skrifar
Skoðun Hugboð, tilfinningar eða upplýst afstaða – útgáfuréttur óviss Berglind Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Ný jafnréttislög kalla á aukið aðhald og skýra framtíðarsýn Kolbrún Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Næstum fjórir af hverjum tíu Íslendingum lesa skilaboð undir stýri Gunnar Geir Gunnarsson,Lára Hrafnsdóttir skrifar
Skoðun Samræmt eftirlit er betra eftirlit Benedikt S. Benediktsson,Jóhannes Þór Skúlason,Sigurður Hannesson skrifar
Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Greinarstúfur um tillögur stjórnavalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir Skoðun