Afkoma umfram áætlanir Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 07:29 Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Vísir/Vilhelm Afkoma Sýnar haf á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var umfram áætlanir og þykir stjórnendum félagsins það til marks um áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri, segir þetta staðfestingu á að aðgerðir og umbreyting síðasta árs séu að skila árangri.
Heildartekjur Sýnar á tímabilinu voru um 5,5 milljarðar króna og jukust þær um 3,6 prósent á milli ára. Í yfirlýsingu sem send var út í gær segir að leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu hafi vöxtur félagsins verið 6,5 prósent. Hann hafi verið borinn uppi af kjarnastarfsemi Sýnar, sem er internetþjónusta, símaþjónusta, fjölmiðlun og auglýsingasala, en þar jukust tekjurnar um 11,7 prósent milli ára. Þá segir einnig að samhliða vexti kjarnatekna hafi markvisst kostnaðaraðhald skilað sér í verulega bættri afkomu. EBITDAaL hafi numið 842 milljónum og hækkað milli 44,9 prósent á milli ára. Rekstrartap (EBIT) hafi dregist saman um 63 milljónir, úr 141 milljónar tapi í 79 milljónir á ársfjórðungnum. Sjá einnig: Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Handbært fé frá rekstri nam 1.056 m.kr. og jókst um 206 m.kr. milli ára. Auk þess hafa hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga lækkað um rúman milljarð á fjórðungnum. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar um ársfjórðungsuppgjörið hér. Haft er eftir Herdísi í yfirlýsingunni að uppgjörið staðfesti að hagræðingaraðgerðir séu að skila árangri. Það sjáist á áframhaldandi vexti tekna og því að handbært fé frá rekstri hafi aukist. „Sameining vörumerkja undir merkjum Sýnar, einfaldara vöruframboð og samruni dótturfélaganna inn í móðurfélagið hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði og bættri framlegð. Launakostnaður lækkar um 6,1% milli ára og endurspeglar bæði fækkun stöðugilda og þá hagræðingu sem náðst hefur með einföldun skipulags. Stöðugildi voru 375 á tímabilinu samanborið við 410 á fyrsta fjórðungi 2025,“ segir Herdís. Hún segir sölu farnetsdreifikerfa til Sendafélagsins, sem lauk á síðasta ári hafa haft jákvæð áhrif á efnahag félagsins á fjórðungnum. „Endurgreiðsla á seljandaláni frá Sendafélaginu að fjárhæð 938 m.kr. styrkti lausafjárstöðu og gerði félaginu kleift að lækka rekstrarlán um 908 m.kr. á fjórðungnum. Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa þannig lækkað um rúman milljarð frá áramótum.“ Ennfremur segir Herdís að gangi sala á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar til Símans hf. eftir, muni hún styrkja efnahagsreikning félagsins og skapa aukið svigrúm til að efla kjarnarekstur Sýnar til framtíðar. Sjá einnig: Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum „Við fórum inn í árið með traustari grunn, einfaldari rekstur og skýra forgangsröðun um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Samhliða því verður áfram lögð áhersla á að bæta arðsemi í fjarskiptum og fjölmiðlum og að nýta þau tækifæri sem skapast með einfaldara skipulagi.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira