Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Árni Sæberg skrifar 7. maí 2026 16:07 Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.
Þetta er haft eftir Jóni Guðna Einarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, í tilkynningu til Kauphallar vegna útgáfu uppgjörs bankans fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. Ríflega tveggja milljarða króna meiri hagnaður en í fyrra Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fyrsta ársfjórðungs eru meðal annars eftirfarandi: Hagnaður af rekstri nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 (1F25: 5,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli (1F25: 9,4%). Hreinar vaxtatekjur námu 17,1 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 4,2 milljarða króna á 1F26 samanborið við 1F25. Vaxtamunur var 3,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 3,2% á 1F25. Hreinar þóknanatekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 3,3 milljarðar króna, sem er aukning um 6,6% samanborið við 1F25. Hrein fjármagnsgjöld voru 213 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 986 milljónir króna á 1F25. Stjórnunarkostnaður nam 7,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, en nam 7,4 milljörðum króna á 1F25. Kostnaðarhlutfall bankans var 38,5% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við kostnaðarhlutfallið 47,6% á 1F25. „Afkoma af kjarnarekstri sýnir að undirstöðurnar í rekstri bankans eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi og sveiflur á mörkuðum erlendis og minni umsvif á markaði hér á landi höfðu áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum, sem þó voru hærri en á fyrsta ársfjórðungi árið 2025,“ er haft eftir Jóni Guðna. Stýrivextir lækkaðir í fyrsta lagi í lok árs Þá er haft eftir honum að afkoma bankans endurspegli traustan rekstur bankans þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi. Ný vildarþjónusta Íslandsbanka hafi slegið í gegn og 38 þúsund viðskiptavinir hafi skráð sig í þjónustuna á fyrstu þremur vikum hennar. Góð viðbrögð viðskiptavina staðfesti að einfaldari, persónulegri og gagnsæ þjónusta skipti máli og bankinn haldi áfram að þróa þjónustuna með það fyrir augum að gera hana enn betri. Staða Íslandsbanka á markaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hafi verið afar sterk og nýverið hafi bankinn hafið að bjóða upp á færsluhirðingu sem hluta vöruframboðs hans og bætt því enn frekar við þjónustu hans á þeim markaði. „Áhrifa óvissu í alþjóðlegu umhverfi hefur orðið vart hér á landi líkt og víða annars staðar. Verðbólga hefur verið þrálát og samkvæmt spá greiningar Íslandsbanka er ekki gert ráð fyrir því að stýrivextir lækki fyrr en í fyrsta lagi í lok árs. Við erum í nánu sambandi við okkar viðskiptavini og fylgjumst með áhrifum ytra umhverfis á umsvif og eignagæði.“ Innleiða gervigreind á markvissari hátt Með stofnun þróunarfélags um nýtingu gervigreindar hafi bankinn tekið eitt skrefið enn að því markmiði að innleiða gervigreind á enn markvissari hátt inn í daglegan rekstur bankans. „Ætlunin er að þróa í félaginu nýjar hugbúnaðarlausnir á kvikan og skapandi hátt og verður áhugavert að fylgjast með þeim anga starfseminnar ná flugi. Innan bankans verður áfram lögð áhersla á að valdefla starfsfólk, þjálfa og kenna því að nýta gervigreindina í störfum þess.“ Skipulagsbreytingarnar sem komu til framkvæmda nýverið séu liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku innan bankans. Íslandsbanki hafi unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans og ætlar sér að vera leiðandi í því að nýta nýja tækni og efla með henni þjónustu við viðskiptavini. Breytingarnar hafi verið liður í því að gera bankann betur í stakk búinn til að móta framtíð bankaþjónustu.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira