Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Valur Páll Eiríksson skrifar 7. maí 2026 15:43 Hafdís í leik með íslenska landsliðinu. vísir / hulda margrét Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna níðs í garð Hafdísar Renötudóttur á grundvelli kynhneigðar hennar í leik ÍBV og Vals í fyrrakvöld. Maðurinn sem varð vís að kalli í hennar garð hefur verið settur í bann og handknattleiksdeild ÍBV biður hana afsökunar.
Handknattleiksdeild ÍBV birti yfirlýsinguna nú síðdegis. Þar kemur fram að stakur einstaklingur í stúkunni hafi látið ummælin falla en ekki stuðningssveit Eyjaliðsins í heild. Ummælin sem beindust að Hafdísi byggðu á kynhneigð hennar og atvikið harmað. Málið er á borði HSÍ sem fordæmir málið og má ÍBV eiga von á refsingum vegna þess. Sá hafi verið settur í bann frá leikjum liðsins vegna málsins. Hafdís er þá beðin afsökunar í yfirlýsingunni. Valur vann leikinn í Eyjum með tveggja marka mun og leiðir einvígið 2-0. Valskonur geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðin eigast við þriðja sinni að Hlíðarenda á laugardaginn kemur. Yfirlýsing ÍBV: Yfirlýsing frá Handknattleiksdeild ÍBV Handknattleiksdeild ÍBV fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttur í leik 2 í úrslitum Olís deildar kvenna. Það skal tekið fram að þetta var einn aðili sem lét þessi orð falla en ekki stuðningsmannasveit ÍBV eða stuðningsmenn ÍBV yfir höfuð. Það hefur verið tekið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann. Fyrir hönd handknattleiksdeild ÍBV biðjum við Hafdísi Renötudóttur afsökunar og vonum að þetta muni ekki hafa meiri áhrif á þetta glæsilega einvígi sem hefur átt sér stað og stendur enn yfir. Fyrir hönd Handknattleiksdeildar ÍBV Garðar B. Sigurjónsson
ÍBV Valur Olís-deild kvenna HSÍ Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira