Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar 7. maí 2026 13:46 Það er áhugavert að fylgjast með kosningabaráttunni í Garðabæ þessa dagana. Það eru lofaðar skíðabrekkur, alls kyns afþreyingarverkefni, skemmtilegri bær, betra að eldast í Garðabæ og sífellt nýjar hugmyndir sem eiga að hljóma vel í kosningabaráttu. Stundum minnir umræðan mann helst á keppni um hver geti komið með skemmtilegasta slagorðið til að kaupa sér atkvæði. En þannig byggjum við víst ekki ábyrg sveitarfélög. Fjármunum sveitarfélagsins þarf líka að verja í „leiðinlegu“ hlutina. Þjónustuna sem fólk sér ekki alltaf eða verður kannski lítið vart við nema þegar hún vantar. Börnin sem þurfa stuðning. Fatlað fólk. Fjölskyldurnar sem eru að reyna að halda sér á floti inni í kerfi sem reynir á by þær á hverjum einasta degi. Ég skrifa þetta ekki bara sem bæjarbúi heldur einnig sem stofnandi Þorláksskóla, skóla fyrir einhverf börn með miklar stuðningsþarfir sem mun opna í Garðabæ á þessu ári. Þorláksskóli varð ekki til út frá einhverri stórri pólitískri stefnumótun eða kosningaloforði. Verkefnið byrjaði í raun á því að ég sem móðir mætti inn á gólf hjá Almari Guðmundssyni bæjarstjóra með áhyggjur af barninu mínu og framtíð þess. Og þar skiptir fólk máli. Án Almars væri þetta verkefni ekki að verða að veruleika í dag. Ekki vegna stórra slagorða eða fallegra kosningaloforða heldur vegna þess að hann hlustaði. Hann hlustaði á foreldri sem var að reyna að fá hjálp fyrir börn sem passa ekki alltaf inn í hefðbundin kerfi. Það er nefnilega stundum þannig sem raunverulegar breytingar byrja. Ekki með flottustu loforðunum heldur þegar einhver er tilbúinn að setjast niður, hlusta og taka ábyrgð. Ég þekki því líka mjög vel hversu mikil þörfin er og hversu oft þessi mál detta niður af forgangslistanum þegar raunverulegar ákvarðanir eru teknar. Það er áhugavert að samkvæmt nýrri Gallup-könnun fyrir ÖBÍ sögðust yfir 80% þeirra sem tóku afstöðu kjósa frekar framboð sem vilja bæta þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu. Nær helmingur telur sveitarfélög leggja of litla áherslu á málaflokkinn. Samt er þetta varla í forgrunni hjá flestum framboðunum í Garðabæ og raunar í flestum sveitarfélögum. Í staðinn virðist umræðan oft snúast um sífellt ný og „skemmtileg“ verkefni sem eiga að hljóma vel í kosningabaráttu. Skíðabrekkur, afþreying og alls konar hugmyndir sem auðvelt er að selja í slagorðum. En á meðan eru fjölskyldur í bænum að bíða eftir þjónustu, stuðningi og raunverulegum úrræðum fyrir börnin sín. Þegar stefnuskrárnar eru skoðaðar kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn er í raun eitt fárra framboða sem fjallar ítarlega um málaflokkinn og setur fram skýra stefnu um snemmtækan stuðning, stoðþjónustu, búsetu- og virkniúrræði, aðgengi barna með fötlun að félagsstarfi og stofnun Þorláksskóla. Þetta eru ekki bara almenn falleg orð heldur raunveruleg stefna. Garðabæjarlistinn talar líka mikið um málefni fatlaðs fólks í sinni stefnu. En þar verður kannski líka að horfa á verkin. Þegar Þorláksskóli kom til afgreiðslu í bæjarráði fékk verkefnið ekki stuðning fulltrúa Garðabæjarlistans. Falleg orð eru auðveld í kosningabaráttu. Raunveruleg forgangsröðun er erfiðari. Þegar öllu er á botninn hvolft snúast sveitarstjórnarkosningar ekki um hver lofar skemmtilegustu verkefnunum. Þær snúast um ábyrgð, forgangsröðun og meðal annars hvort kjörnir fulltrúar séu tilbúnir að standa með þeim fjölskyldum sem mest þurfa á stuðningi að halda. Ég vona líka að kjósendur hugsi vel um þessi mál þegar þeir verja atkvæði sínu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þjónusta við fatlað fólk og einhverf börn er ekki jaðarmál fyrir fáa einstaklinga. Þetta eru lífsgæði fjölmargra fjölskyldna og mælikvarði á það hvers konar samfélag við viljum vera. Höfundur er íbúi í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar