Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 7. maí 2026 09:50 Ég elska að búa í borg sem iðar af lífi og ég veit að eitt af því mikilvægasta við lifandi borgir er að í þeim búi fólk sem sé tilbúið að taka áhættu og stofna ný fyrirtæki. Á síðustu árum höfum við hjónin tekið þátt í að stofna fjölmörg fyrirtæki bæði á Íslandi og erlendis. Við fluttum til Svíþjóðar árið 2008 til að opna þar Serrano veitingastaði, sem eru núna um 20 talsins í helstu borgum Svíþjóðar og Danmerkur. Í miðjum Covid-faraldri stofnuðum við ásamt vinum okkar pizzastaðinn Vår Pizza í úthverfi Stokkhólms þar sem við bjuggum. Við sáum tækifæri í því að búa til hverfisstað þar sem að flestum var á þessum tíma bannað að fara í vinnuna á skrifstofum í miðborg Stokkhólms. Að sama skapi sáum við tækifæri í því að breyta einum af okkar mexíkósku stöðum í mathöll. Vegna Covid hafði staðurinn farið úr því að afgreiða 300 gesti á dag niður í 20-30 gesti, en okkur tókst að fá sjö veitingastaði til að deila plássinu með okkur. Úr varð City Food Hall, ein vinsælasta mathöll Stokkhólms í dag. Tafir, tap og áhyggjur Í þessum veitingarekstri okkar þurfti ég ítrekað að eiga samskipti við yfirvöld í Stokkhólmi. Það þurfti að ræða við byggingarfulltrúa, áfengisyfirvöld, svara fyrirspurnum og það oft um sama hlutinn. Umfram allt hef ég þurft að bíða. Fyrir embættismanninn er biðin kannski ekki merkileg en fyrir okkur sem erum í fyrirtækjarekstri getur hún reynst dýrkeypt. Ég hef reynslu af því hvernig tafir við afgreiðslu innan stjórnsýslunnar geta valdið gríðarlegu tapi og djúpum áhyggjum hjá okkur sem erum í rekstri. Vanlíðan vegna óvissu um hvort hægt sé að borga öllum laun á réttum tíma, hvort staðurinn geti hreinlega opnað eða selt bjór. Borgin á að styðja við atvinnulífið Sömu sögu má segja af Reykjavíkurborg. Tafir, langur afreiðslutími og bið sem rekstraraðilar hafa enga stjórn á. Í síðustu viku hitti ég konu sem rekur hótel þar sem um 30 herbergi hafa beðið samþykkis í margar vikur þrátt fyrir að legið hafi fyrir í mörg ár að þarna eigi að koma hótel. Á meðan getur hún ekki sett herbergin í útleigu með tilheyrandi tekjutapi. Það að stofna fyrirtæki er erfitt og við höfum oft velt því fyrir okkur hvað við séum eiginlega að gera í þessum bransa. Þegar maður stofnar veitingastað eða verslun eða snyrtistofu þá eru engar tekjur í hendi. Á hverjum degi í Reykjavík opna hundruð fyrirtækjaeiganda dyrnar á fyrirtækinu sínu og vonast til að fólk komi inn. Það er í raun kraftaverk hvernig hlutirnir ganga upp. Er það ekki magnað að við vitum nokkurn veginn að fullt af fólki mun ákveða að kaupa sér pizzu á Flatey eða minjagrip á Laugaveginum á morgun? Áhyggjurnar í fyrirtækjarekstri eru margar og við sem bjóðum okkur fram til að sitja í borgarstjórn verðum að vilja vinna með fyrirtækjunum sem lífga upp á borgina okkar. Það er ekki sjálfsagt að Reykvíkingar leggi peningana, tímann og líðan sína að veði til þess eins að bjóða okkur upp á nýja tegund af mat, skyrtum eða klippingu í okkar hverfi. Ég er þakklát fyrir þetta fólk og vil hjálpa því. Ég býð mig fram í borgarstjórn Reykjavíkur og ég mun leggja mig fram um að borgin vinni betur með fyrirtækjum og þjónusti fólk og hjálpi fyrirtækjum að dafna. Því þá verður borgin betri! Höfundur skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Margrét Rós Sigurjónsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun