Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar 7. maí 2026 09:42 Hefur þétting byggðar á Kársnesi lukkast? Munu Kársnesskóli og Barnaskóli Kársness anna þeim fjölda barna sem fylgja þeirri þéttingu byggðar sem framundan er á svæðinu? Eða er þessi „sókn“ kannski gjörsamlega mislukkuð? Er leikurinn gegn þéttingu mögulega tapaður á svæðinu? Þetta eru spurningar sem fara í gegnum huga minn, og ég kemst ekki hjá því að komast að þeirri niðurstöðu að við séum stödd í síðasta leikhluta, og varnarleikur sé skynsamlegastur á þessum tímapunkti, áður en allt mun um koll keyra í hverfinu. Undirrituð er svo gott sem borinn og barnfæddur Kársnesingur. Gekk bæði í Kársnes og Þingó. Ég eins og svo mörg okkar sem ólumst upp í þessu friðsæla og fjölskylduvæna hverfi kaus að setjast þar að með mín börn og ala þau upp á Kársnesinu. Fyrir um 8 árum síðan fór ég að finna fyrir breytingum á hverfinu læðast aftan að mér. Umferð fór að aukast. Hver byggingakraninn á eftir öðrum fór að rísa upp og þétt byggðar byggingar spruttu upp. Samhliða þessari þéttingu var Kársnesskóli við Skólagerði rifinn sökum myglu. Var því útséð að skortur var á húsnæði fyrir skólastarfsemi á svæðinu. Áfram var samt haldið með uppbyggingu, og lausnin var að henda í skemmtilega fangelsisstemningu við skólann í Vallargerði. Settir voru niður skúrar á malbikaða lóð og öllum nemendum frá 1-10 bekk troðið í Vallargerðið. Bæði nemendur og kennarar þurftu að sætta sig við óviðunandi aðstæður í allt of langan tíma, enda drógst uppbygging nýs skóla endalaust. Kostnaðurinn rauk upp úr öllu valdi og margt og mikið um klúður þar sem margar spurningar kvikna, sem er í raun efni í sér grein. Það var hins vegar ekki hægt á þéttingu á svæðinu þrátt fyrir þessa hraðahindrun. Enda virðist svo vera að innviðir séu ekki forgangsmál þegar kemur að þéttingu byggðar í Kópavogi. Þeim er bara reddað er að er virðist eftir á. En á hverjum bitnar þetta? Jú þeim sem þjónustan snýr að. Það ríkti því mikil eftirvænting þegar nýi skólinn var loks opnaður til kennslu síðasta haust. En var hann tilbúinn? Heldur betur ekki, og enn standa yfir framkvæmdir á skólalóðinni. Það þótti heldur ekkert mikilvægt hjá þeim sem fara með skipulagsvöld hjá bænum að hafa gott rými fyrir grunnskólann og útisvæði, heldur var byggður líka leikskóli á reitnum, og bílastæði eru af skornum skammti. Allt í stíl við þéttingarstefnuna. Hvað þýðir þetta? Lítil lóð er eftir fyrir útileikssvæði, og einungis einn sparkvöllur fyrir krakkana til að rífast um. Það var einnig tækifæri til að hafa nýjan og almennilegan körfuboltavöll á lóðinni, þar sem engann slíkan er að finna á Kársnesinu. Það tækifæri fór fyrir bý, þar sem körfuboltavöllurinn sem útbúin var á nýrri lóð ber þess merki að honum hafi verið bætt við eftir á. Völlurinn er ekki í venjulegri stærð og stendur í töluverðum halla, og ríkir í raun talsverð óánægja með hann. Einnig hefði Kópavogsbæ verið í lófa lagið í það minnsta að bæta upp litla lóð með því að hafa vellina upphitaða, svo hægt væri að nota þá þegar fenna tekur yfir þá. Það þótti sennilega of kostnaðarsamt. Til stendur svo að leggja Borgarlínuna á milli skólana tveggja, þar sem börn þurfa að þvera brautina. Vekur það spurningar út frá öryggissjónarmiðum hvort það sé í raun ákjósanlegt að kljúfa skólahverfið með þessum hætti? Hraðhjólastígur meðfram Kársnesströndinni er svo líka í pípunum, sem mun hafa veruleg áhrif á eina útivistasvæði íbúa á Kársnesinu. Það er ekki andstaða að staldra við og spyrja mikilvægra spurninga. Fyrst og fremst þarf að taka mið af þeim sem eiga heima á svæðinu en ekki þeim sem munu koma til með að fara þar í gegn. Kársnesið er ekki bara skipulagsvalda að skipuleggja, það er heimili íbúa, og það þarf að hlusta á þær raddir. Við þurfum að standa vörð um það. Kársnesið okkar á betra skilið. Höfundur skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun