Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Valur Páll Eiríksson skrifar 6. maí 2026 11:33 Leikur Stjörnunnar við Tindastól er klukkan 18:15 á Sýn Sport Ísland 2. Leikur Vals við Grindavík er í kjölfarið klukkan 20:15 á Sýn Sport Ísland. Samsett/Vísir Eitt stærsta íþróttakvöld ársins er fram undan. Oddaleikirnir í undanúrslitum karla í körfubolta verða sýndir hvor á sinni rás Sýnar Sport í kvöld en fjölmenn teymi eru komin saman bæði á Sauðárkróki og í Grindavík.
Mikil spenna er í Bónus deild karla þar sem oddaleikir munu útkljá í kvöld hvaða tvö lið keppast um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrri oddaleikurinn fer fram á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og Stjarnan eigast við. Stjarnan vann fyrstu tvo leiki liðanna en Tindastóll hefur unnið leikina tvo síðan. Leikur þeirra liða hefst klukkan 18.15 en upphitun hefst á Sýn Sport Ísland 2 klukkan 17.45. Stefán Árni Pálsson og hans menn í Körfuboltakvöldi verða í Grindavík í kvöld og hefja þar upphitun fyrir leikinn norðan heiða hálftíma fyrir leik, auk þess að fara yfir gang mála í hálfleik. Líkt og áður segir verður leikurinn fyrir norðan á Sýn Sport Ísland 2. Ef ske kynni að leikurinn verði framlengdur er hann ekki á sömu rás og síðari oddaleikurinn. Sá er milli Grindavíkur og Vals, en þar er staðan einnig 2-2 í einvíginu. Sá leikur hefst klukkan 20.15 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir þann leik hefst á þeirri rás hálftíma fyrir leik, klukkan 19.45, en þá má vel vera að leikurinn fyrir norðan verði enn í gangi. Stefnt er að því að sjá megi viðbrögð leikmanna og þjálfara að norðan á meðan upphitun fyrir leik Grindavíkur og Vals stendur. Upphitun fyrir leik Tindastóls og Stjörnunnar hefst klukkan 17.45 á Sýn Sport Ísland 2 og leikurinn sjálfur klukkan 18.15. Upphitun fyrir leik Grindavíkur og Vals hefst klukkan 19.45 á Sýn Sport Ísland og leikurinn sjálfur klukkan 20.15. Meistaradeildin og Besta deild kvenna Margt fleira er um að vera á rásum Sýnar Sports í kvöld og má þar helst nefna stórleik Bayern Munchen og Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum eftir ótrúlegan 5-4 sigur PSG í fyrri leik liðanna í París í síðustu viku. Upphitun fyrir þann leik hefst klukkan 18.30 á Sýn Sport og Leikurinn sjálfur klukkan 19.00 á sömu rás. Einnig eru fjórir leikir á dagskrá í Bestu deild kvenna sem rúllar frá klukkan 16.30 til 21.15. Fyrsti leikurinn er að Hlíðarenda þar sem Valur og ÍBV eigast við á Sýn Sport Ísland 5 frá klukkan 16.20. Annar leikurinn er á Akureyri milli Þórs/KA og Stjörnunnar á Sýn Sport Ísland klukkan 16.50. Klukkan 19.15 eru þá tveir leikir sem klára umferðina. FH mætir Grindavík/Njarðvík á Sýn Sport Ísland 4 og Víkingur tekst á við Breiðablik á Sýn Sport Ísland 3. Dagskrá kvöldsins í heild er eftirfarandi: Bónus deild karla: 17.45 Tindastóll – Stjarnan (Sýn Sport Ísland 2) 19.45 Grindavík – Valur (Sýn Sport Ísland) 22.10 Bónus Körfuboltakvöld (Sýn Sport Ísland) Besta deild kvenna: 16.20 Valur – ÍBV (Sýn Sport Ísland 5) 16.50 Þór/KA – Stjarnan (Sýn Sport Ísland) 19.05 FH – Grindavík/Njarðvík (Sýn Sport Ísland 4) 19.05 Víkingur R. – Breiðablik (Sýn Sport Ísland 3) Meistaradeild Evrópu: 18.30 Upphitun (Sýn Sport) 18.50 Bayern Munchen – PSG (Sýn Sport) 21.00 Meistaradeildarmörkin (Sýn Sport)
Bónus-deild karla Sýn Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Henti póstinum í ruslið en svaraði níu mánuðum síðar Fótbolti Fleiri fréttir Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Sjá meira