Vann silfur á veikari fæti en áföllin dynja á Daníel Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 10:03 Daníel Ingi Egilsson er Íslandsmethafi í langstökki en getur ekki keppt vegna þrálátra meiðsla í hné. Vísir/Sigurjón Það á ekki af Daníel Inga Egilssyni, Íslandsmethafa í langstökki, að ganga en þrálát meiðsli í hné gera að verkum að hann mun væntanlega ekki keppa neitt í sumar.
Þetta kemur fram í viðtali við Daníel á vef RÚV í dag þar sem hann fer yfir meiðslasögu sína síðasta árið. Hann glímir við það sem kallast „jumpers knee“, eða bólgur í sininni sem liggur yfir hnéð, sem gerir að verkum að Daníel getur ekki stokkið vegna verkja. Sumarið 2024 hafði Daníel tvíbætt gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar, fyrst með 8,01 metra stökki og svo með stórglæsilegu 8,24 metra stökki. Skellurinn var því mikill síðasta sumar þegar meiðslin fóru að gera vart við sig og frekari bætingar ekki mögulegar, og illa hefur gengið fyrir Daníel að fá bót meina sinna sem ítrekað hefur fengið slæmar fréttir í leit sinni að bata. Hann hefur þó reynt allt til þess að halda áfram að keppa og stökk til að mynda með veikari fætinum á Meistaramóti Íslands í ágúst í fyrra, og var aðeins tveimur sentímetrum frá gullverðlaunum en hlaut silfur. Þá keppti hann í 60 metra spretthlaupi á Reykjavíkurleikunum í byrjun þessa árs. Oft hugsað um að hætta bara En nú þegar ljóst er að Daníel missir til að mynda af Evrópumótinu í Birmingham í ágúst viðurkennir hann að hafa íhugað að láta gott heita í langstökki. „Þetta er að sjálfsögðu búið að vera ótrúlega erfitt en maður reynir að halda jákvæðni í gegnum þetta allt saman. En upp á síðkastið hefur þetta verið hvað erfiðast og oft og tíðum hef ég hugsað bara að hætta. Það hefur verið gríðarlega erfitt að geta ekki gert það sem maður vill og elskar vegna sársauka og hvað þá þegar maður sér litlar framfarir,“ segir Daníel við RÚV. Hann bætir þó við að þó að erfitt sé að sjá heilt ár fara í vaskinn sé stefnan núna að komast inn á Ólympíuleikana í Los Angeles sem fram fara sumarið 2028, og að komast þar í úrslit.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Sjá meira