Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Lovísa Arnardóttir skrifar 5. maí 2026 22:03 Innipúkinn er í Reykjavík að vanda um verslunarmannahelgi. Aðsend FM Belfast, Emmsjé Gauti, Retro Stefson, Gugusar, Kusk & Óviti og Amor Vincit Omnia eru meðal listamanna sem koma fram á Innipúkanum sem verður í annað sinn haldin í Austurbæjarbíó um verslunarmannahelgina. Hátíðin er eins og áður þrír dagar. „
Það er okkur mikil ánægja að snúa aftur í Austurbæjarbíó, sem hefur á undanförnum mánuðum tekið stakkaskiptum og fest sig í sessi sem ný miðstöð menningar og tónlistar í hjarta Reykjavíkur. Að halda Innipúkann í annað sinn í þessu endurbætta og glæsilega húsi gefur hátíðinni nýja vídd og leyfir Innipúkum landsins að fara á tryllt djamm um verslunarmannahelgina án þess að hafa áhyggjur af veðri eða vindum,“ segir Eldar Ástþórsson, elsti púki og einn skipuleggjenda. Á myndinni eru þeir Ásgeir, Steinþór Helgi og Eldar. Aðsend Í tilkynningu segir að hátíðin hafi lengi verið griðastaður þeirra sem kjósa malbik fremur en útileguna um verslunarmannahelgina. „Í ár ætlum við okkur enn stærri hluti og dagskráin endurspeglar fjölbreytni og kraft sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag. Partíbönd, danstónlist, rokk og ról mæta öll spennt, hress, þurr og pínu full,“ segir Eldar. „Það er gríðarleg ánægja innan herbúða Innipúkans með þessa fyrstu tilkynningu ársins. Við teflum fram risastórum nöfnum sem hafa lengi tryggt besta partý bæjarins, í bland við fersk og framúrskarandi nöfn úr íslensku grasrótinni. Þetta er aðeins byrjunin og við hlökkum mikið til að kynna enn fleiri listamenn á næstunni,“ segir Ásgeir Guðmundsson, frekjupúki og skipuleggjandi. Í tilkynningu kemur fram að fjölbreyttir viðburðir muni fara fram í kringum hátíðina sem verði tilkynntir síðar auk fleiri listamanna. Miðasalan er hafin á moment.is.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Verslunarmannahelgin Tengdar fréttir Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Tónlistarmenn og gestir á Innipúkanum eru að sögn viðburðarhaldara hæstánægðir við aðstöðuna í Austurbæjarbíó sem er að mörgu leyti aftur farin að gegna sínu gamla hlutverki sem tónleika- og menningarhús. 3. ágúst 2025 18:38 Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Innipúkinn fer venju samkvæmt fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Einvala lið tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni, meðal annars Ragga Gísla og Hipsumhaps, Sigga Beinteins og Babies flokkurinn, Ásdís, Birnir, Bríet, Floni og Mugison. 25. júní 2025 21:09 Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Ragga Gísla og Hipsumhapps snúa bökum saman og koma fram í sameiningu í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina, 1. til 3. ágúst. Hátíðin flytur sig nú um set og verður haldinn í Austurbæjarbíó í stað Ingólfsstrætis þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár. 19. júní 2025 11:59 Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma í fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. 31. maí 2024 13:50 Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira
Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Tónlistarmenn og gestir á Innipúkanum eru að sögn viðburðarhaldara hæstánægðir við aðstöðuna í Austurbæjarbíó sem er að mörgu leyti aftur farin að gegna sínu gamla hlutverki sem tónleika- og menningarhús. 3. ágúst 2025 18:38
Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Innipúkinn fer venju samkvæmt fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Einvala lið tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni, meðal annars Ragga Gísla og Hipsumhaps, Sigga Beinteins og Babies flokkurinn, Ásdís, Birnir, Bríet, Floni og Mugison. 25. júní 2025 21:09
Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Ragga Gísla og Hipsumhapps snúa bökum saman og koma fram í sameiningu í fyrsta sinn á tónlistarhátíðinni Innipúkanum í Reykjavík um verslunarmannahelgina, 1. til 3. ágúst. Hátíðin flytur sig nú um set og verður haldinn í Austurbæjarbíó í stað Ingólfsstrætis þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár. 19. júní 2025 11:59
Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma í fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök. 31. maí 2024 13:50