Þessi sigruðu Met Gala Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 5. maí 2026 09:13 Laufey skein skært meðal stjarnanna á Met Gala í gær. Getty Fyrsti mánudagur í maí var í gær og tískuunnendur heimsins vita hvað það þýðir, Met mánudagur. Stærsta tískuhátíð ársins Met Gala fór fram með pompi og prakt á Metropolitan safninu í New York í gærkvöldi og stærstu stjörnur heimsins gáfu ekkert eftir í glæsileikanum.
Þemað í ár var búningalist eða Costume Art en kvöldið er stærsta söfnunarkvöld safnsins á ári hverju. Í kjölfarið opnar Metropolitan safnið stóra listasýningu tengda þemanu. Tíska er að sjálfsögðu mikið listform en þetta kvöld snerist um að ganga enn lengra í listinni og fara frumlegar leiðir. Eins og gengur og gerist fóru sumir alla leið í þemanu og báru af. Laufey okkar Lín var glæsileg í perluhvítum pallíettukjól frá tískuhúsinu Tory Burch. Kjóllinn var í laginu eins og selló en Laufey lærði lengi á hljóðfærið og tengir það sérstaklega við kvenleikann. Sömuleiðis ólst hún upp við að heimsækja Met safnið með foreldrum sínum og í uppáhaldi var að grandskoða tónlistarherbergið. „Ég hugsaði því að kjóllinn yrði að tengjast selló-rótunum mínum,“ sagði Laufey í samtali við Teen Vogue um klæðaburðinn fyrir Met Gala. Laufey stórglæsileg selló skvísa í Tory Burch. Theo Wargo/FilmMagic Hér má sjá fleiri stjörnur sem báru af á rauða dreglinum: Heidi Klum hefur ekki áhyggjur af því að vera skvís enda alltaf ekkert eðlilega töff og flott. Hún tók búningaþemað ALLA LEIÐ hér í sérsníðuðum klæðum frá Mike Marino sem sótti innblástur í styttur og skúlptúra listamannsins Raffaele Monti. Mike Coppola/Getty Images Heated Rivalry stjarnan Hudson Williams skein skært á fyrsta Met Galanu hans í Balenciaga fitti sem sótti innblástur til gamals stíls tískuhúsins frá nautabana 1947. Mike Coppola/Getty Images Mæðgurnar Beyoncé og Blue Ivy Carter mættu á Met Gala en almenna reglan er að enginn yngri en átján ára fái að komast inn. Greinilega var Blue Ivy undantekningin! Þær eru stórglæsilegar í hönnun tískuprinsins Oliver Rousteing en þetta var fyrsta Met Gala Beyoncé í áratug! Jamie McCarthy/Getty Images Áhrifavaldurinn og tískudrottningin Emma Chamberlain kann alltaf að taka rétta áhættu og fer eigin listrænu leiðir í lífi og klæðaburði. Hún var ekkert eðlilega flott í þessum listaverkakjól frá Mugler. Julian Hamilton/Getty Images Rihanna drottningin sjálf í skúlptúrkjól frá tískuhúsinu Margiela. Mike Coppola/Getty Images Hunter Schafer sumarleg og glæsileg í Prada. Mike Coppola/Getty Images Kim Kardashian appelsínugulur skúlptúr draumur í Allen Jones og Whitaker Malem. Mike Coppola/Getty Images Rachel Sennott grúví gella með franska listamannatakta frá 20. öld í Marc Jacobs fitti. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue Chase Infiniti algjört listaverk í sérhönnuðum kjól frá Thom Browne. Jamie McCarthy/Getty Images Doechii á tánum og ótrúlega elegant í Marc Jacobs en hann er þekktur fyrir einstaklega skemmtileg lúkk á dreglinum. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue SZA býflugnadrottning í Bode glæsileika. Julian Hamilton/Getty Images Kylie Jenner epísk í Schiaparelli kjól sem er almennilegur búningur - skemmtilegt tvist á flík. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue Sarah Paulson einstaklega áberandi og skemmtileg í Matieres Fécales. Dollarinn fyrir augunum er ádeila á peningagræðgi og spillingu en Paulson sagði að 1 dollarinn stæði sömuleiðis fyrir eina prósentið í heiminum sem á langmestan peninginn, sumsé milljarðamæringarnir. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue Sabrina Carpenter í gatsby x gladiator fíling í Dior kjól. Mike Coppola/Getty Images Gwendoline Christie náði þemanu algjörlega með tískuhúsinu Giles Deacon. Mike Coppola/Getty Images Anok Yai ofurtöff í Balenciaga. Theo Wargo/FilmMagic Sam Smith glæsilegt í galafitti eftir maka háns Christian Cowan.Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue Drottningin Teyana Taylor heldur áfram að sigra dregilinn hér í Tom Ford. Mike Coppola/Getty Images OKEI Madonna mætti með sjö fylgdardömur eðlilega í Saunt Laurent swag-i. Theo Wargo/FilmMagic Lisa draumur með aukahendur í elegant búning frá Robert Wun. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue
Tíska og hönnun Laufey Lín Bandaríkin Menning Tengdar fréttir Met Gala-bölvunin alræmda Stærsta og heitasta tískuhátíð ársins fer fram með pompi og prakt í kvöld þar sem þemað er Búningalist eða Costume Art. Þangað mæta allar helstu stjörnur í heimi en samkvæmt alræmdri Met Gala bölvun virðist ekki vænlegt til vinnings að mæta með maka á dregilinn. 4. maí 2026 16:02 Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fleiri fréttir „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira
Met Gala-bölvunin alræmda Stærsta og heitasta tískuhátíð ársins fer fram með pompi og prakt í kvöld þar sem þemað er Búningalist eða Costume Art. Þangað mæta allar helstu stjörnur í heimi en samkvæmt alræmdri Met Gala bölvun virðist ekki vænlegt til vinnings að mæta með maka á dregilinn. 4. maí 2026 16:02