Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar 4. maí 2026 11:32 Þjónusta sveitarfélaga Rannsóknir á hamingju hafa ítrekað sýnt að félagsleg tengsl hafa sterkustu fylgnina við lífsánægju fólks. Við sem viljum halda um stjórnartaumana á samfélaginu okkar, þurfum að axla okkar ábyrgð á því að skapa vettvanga þar sem fólk getur komið saman og ræktað tengsl. Sumt gerum við nú þegar vel, annað mætti betur fara. Sundlaugarnar okkar eru sennilega besti staðurinn fyrir samveru, sama hvort það sé með fjölskyldu og vinum eða til þess að spjalla um allt milli himins og jarðar í heita pottinum eða saununni. Þar er síminn skilinn eftir og fólk getur komið saman og ræktað tengsl. Sveitarfélagið Ísafjarðarbær rekur fjórar sundlaugar, og það er ljóst að endurskoða þarf opnunartíma sundlauganna og bæta verulega í viðhaldið í öllum byggðarkjörnum. Ég held að enginn útsvarsgreiðandi óski þess að við sinnum viðhaldi á sundlaugunum okkar illa, að minnsta kosti viljum við jafnaðarmenn það ekki. Um aldarmótin var rekið ungmennahús í Ísafjarðarbæ, slík er raunin ekki lengur, og úr því viljum við jafnaðarmenn bæta. Við getum ekki lengur haldið áfram að lesa fréttir og gögn um það að vanlíðan ungmenna aukist án þess að gera neitt í því. Ungt fólk á skilið að fá rými til þess að koma saman, og koma hugmyndum sínum í framkvæmd í samveru við aðra. Ekki má gleyma því að það eru ekki öll ungmenni sem fara í menntaskóla, þau þurfa líka á félagslífi að halda eins og allir aðrir bæjarbúar. Þess vegna viljum við jafnaðarmenn opna ungmennahús í bænum, til að gefa ungu fólki færi á að koma saman og rækta félagsleg tengsl. Það hefur sjaldan verið eins mikilvægt að búa til vettvanga fyrir ungt fólk en á tímum þar sem sími og tölva eru farin að koma í veg fyrir að fólk rækti félagsleg tengsl utan þeirra. Þetta á einnig við um félagsmiðstöðvar sveitarfélagins, en bragarbót mætti gera á starfsemi þeirra og endurskoða opnunartíma. Allt sem ég hef talið upp hér að ofan eru vettvangar þar sem fólk getur komið saman og ræktað félagsleg tengsl. Í heimi þar sem sundrung og stéttaskipting er mikil, er einmanaleiki orðinn ein af okkar stærstu lýðheilsuógnum. Þess vegna hefur sjaldan verið eins mikilvægt fyrir sveitarfélög að búa til vettvanga fyrir fólk á öllum æviskeiðum, ekki síst ungmenni, foreldra og börn, til þess að koma saman. Sterk félagsleg tengsl hafa mestu fylgnina við hamingju í hamingjurannsóknum. Við, mannskepnan, erum félagsverur og við þurfum hvort annað. Góð geðheilsa er háð því að við upplifum að við tilheyrum og sveitarfélög geta búið til vettvanga til þess að styðja við þessa grunnþörf okkar allra. Höfundur er lýðheilsufræðingur og situr í 11. sæti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar