Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar 3. maí 2026 15:03 Samgöngur eru eitt stærsta hagsmunamál Reykvíkinga. Þær snúast ekki bara um götur, akreinar eða ljósastýringu. Þær snúast líka um tíma fólks. Að komast í vinnu, sækja börnin, sinna fjölskyldunni og komast heim á skikkanlegum tíma. Í norrænni goðafræði er Gná sendiboði Friggjar. Hún fer milli heima á hestinum Hófvarpni, sem er sagður geta farið um loft og lög. Gná var send þegar koma þurfti mikilvægum erindum hratt og örugglega á milli staða. Hún er því sterk táknmynd fyrir það sem góðar samgöngur eiga að vera. Greiðar, áreiðanlegar og þannig skipulagðar að fólk komist leiðar sinnar. Það er einmitt sú hugsun sem við í Framsókn viljum leggja til grundvallar í samgöngumálum Reykjavíkurborgar. Gná greiðir leiðina heim Við viljum borg þar sem almenningssamgöngur eru góðar, bílaumferð greið og stígar fyrir gangandi og hjólandi öruggir. Þess vegna viljum við byggja upp öflugar almenningssamgöngur á sérakreinum. Almenningssamgöngur þurfa að vera hraðar, áreiðanlegar og raunhæfur valkostur. Það gerist ekki ef vagnarnir sitja fastir í sömu umferðarteppum og allir aðrir. Gyðjan Gná þurfti greiða leið til að komast á milli heima og sömuleiðis þurfa samgöngulausnir borgarinnar að byggjast á skynsemi. Við viljum ekki samgöngupólitík sem stillir fólki upp í fylkingar. Einn fararmáti þarf ekki að vinna á móti öðrum. Magnea Gná Jóhannsdóttir er borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. Í því samhengi má benda á að ekki er skynsamlegt að fækka akreinum fyrir bíla á Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut er mikilvæg umferðaræð. Þar þarf að tryggja gott flæði samhliða því að bæta almenningssamgöngur. Ef við ætlum að fá fólk með okkur í uppbyggingu almenningssamgangna þurfum við að sýna að lausnirnar séu skynsamlegar, ekki íþyngjandi. Við í Framsókn erum svo heppin að eiga okkar eigin Gná, borgarfulltrúann Magneu Gná. Líkt og nafna hennar í goðafræðinni treystum við henni til að greiða leiðina á milli staða af skynsemi og sáttarhug fyrir borgarbúa. Hún vill ekki greiða leiðina milli staða með átökum, heldur af skynsemi og sáttarhug fyrir Reykjavík. Við getum bætt almenningssamgöngur án þess að lama bílaumferð og án þess að gera fjölskyldubílinn að óvini. Við Framsóknarmenn treystum borgarfulltrúanum okkar Magneu Gná til að greiða fyrir leiði samgangna og samskipta í borginni. Höfundur er fyrrum borgarfulltrúi, þingmaður, ráðherra og skipar 46. sætið á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar