Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 15:55 Fanney Inga fagnar í úrslitaleik dagsins Vísir/Getty Íslensku landsliðskonurnar í fótbolta Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir urðu í dag fyrstu Evrópubikarmeistarar kvenna með liði sínu BK Häcken.
Þetta varð ljóst eftir samanlagðan X-X sigur Häcken í úrslitaeinvígi gegn Guðrúnu Arnardóttur og liðsfélögum hennar í liði Hammarby. Liðin mættust í seinna skiptið í sínu einvígi á heimavelli Häcken í dag. Fanney Inga stóð á milli stanganna í liði Häcken í leik dagsins á meðan að Thelma Karen byrjaði á meðal varamanna en kom inn á strax við upphaf seinni hálfleiks. Hjá Hammarby var Guðrún Arnardóttir í byrjunarliði Hammarby en þurfti því miður að fara meidd af velli eftir um stundarfjórðungs leik. Leikur dagsins bauð upp á mikla skemmtun en Häcken leiddi einvígið fyrir hann eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum. Häcken virtist vera að loka einvíginu nokkuð snemma leiks því eftir um níu mínútna leik hafði Felicia Schröder komið liðinu tveimur mörkum yfir. Hammarby neitaði hins vegar að gefast upp. Mörk frá Sveu Rehnberg og Elin Sörum jöfnuðu leikinn og sáu til þess að einvígið stóð 3-2 Häcken í vil. Þegar hins vegar var komið fram á 54.mínútu fullkomnaði Schröder þrennu sína með þriðja marki sínu og Häcken í leiknum og gulltryggði það mark 4-2 sigur Häcken í einvíginu sem og Evrópubikarmeistaratitillinn. Thelma Karen fagnar hér með Schröder eftir að sú síðarnefnda fullkomnaði þrennu sína í leik dagsinsVísir/Getty Fyrsta tímabilið að baki í Evrópubikar kvenna. Lið Häcken, með þær Fanneyju og Thelmu innanborðs, því fyrstu Evrópubikarmeistararnir.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira