Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 13:43 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/Anton Brink Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, gagnrýndi leikmenn sína á blaðamannafundi eftir jafntefli gegn Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.
Lærisveinar Guðjóns Vals komu sér í afar slæma stöðu í umræddum leik og voru 21-13 undir þegar 25 mínútur voru eftir af leiknum. Liðinu tókst þó að vinna sig aftur inn í leikinn og skora jöfnunarmark fjórum sekúndum áður en leiktíminn rann út. Lokatölur 29-29. Gummersbach hafði frá því í desember átt frábæru gengi að fagna en í undanförnum tveimur leikjum hefur uppskeran aðeins verið eitt stig. Liðið er engu að síður í 4. sæti, með 44 stig úr 30 leikjum en hefur ekki efni á því að slökkva á sér eins og gerðist í gær. Endurkoma liðsins í gær nægði leikmönnum Guðjóns Vals ekki til þess að sleppa við eldræðu frá honum. Eftir hamingjuóskir frá kollega sínum, þjálfara Göppingen, tók Guðjón Valur til máls á blaðamannafundinum eftir leik: „Takk fyrir hamingjuóskirnar með þetta algjörlega óverðskuldaða stig okkar. Göppingen var miklu betra liðið í dag,“ sagði Guðjón Valur sem var kominn í ákveðinn ham og líkir blaðamaður þýska miðilsins Bild eldræðu hans sem á eftir fylgdi við eldræðu Giovani Trappatoni árið 1998. Þá, sem þjálfari Bayern Munchen, gagnrýndi Trappatoni leikmenn sína harðlega. Sá blaðamannafundur löngu orðinn goðsagnakenndur og sjá má innslag sem var gert um hann hér: Guðjóni Val var líkt við íslenskt eldfjall sem spúir glóandi hrauni út úr sér þegar að hann gagnrýndi spilamennsku sinna manna sleitulaust í langan tíma. „Mér er alveg sama hversu marka leiki við höfum unnið til þessa. Það er alltaf frammistaðan í þeim leik sem framundan er og stendur yfir sem skiptir máli,“ sagði Guðjón en brot af blaðamannafundinum má sjá hér fyrir neðan:
Þýski handboltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira