Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Þorsteinn Hjálmsson skrifar 30. apríl 2026 22:03 Magnús Óli Magnússon var borinn af velli í kvöld. vísir/Anton „Orkustigið var meira í okkur en í síðasta leik. Það var bara mikill kraftur í okkur og miklu meiri kraftur í varnarleiknum okkar,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, eftir sigur sinna manna gegn FH í leik þrjú um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.
Valsmenn eru því einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum eftir tveggja marka sigur kvöldsins, 32-30. Staðan í einvíginu 2-1 fyrir Val, en liðin mætast næst á mánudaginn í Kaplakrika. Auðvitað algjört slys Það skyggði þó á gleði Valsmanna að Magnús Óli Magnússon skyldi meiðast illa í leiknum. Sjúkrabíll kom og sótti hann eftir að hann var borinn af velli. „Þeir bara skullu saman, auðvitað bara algjört slys og þetta var höfuðhögg. Ég hélt að samkvæmt reglunum þá ætti að stoppa leikinn strax en það allavegana fannst dómurunum ekki. Magnús fór í sjúkrabíl hérna áðan þannig að ég veit svo sem ekkert meira stöðuna á því,“ sagði Ágúst. Varðandi leikinn sjálfan þá var Ágúst ánægður með sigur í frábærum handboltaleik. „Ég hefði viljað geta keyrt aðeins meira á þá, en við vorum með góðan varnarleik og náðum að brjóta vel á þeim og Björgvin góður fyrir aftan. Það var kannski það sem skóp sigurinn,“ sagði Ágúst. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, ræðir við sína menn í kvöld.vísir/Anton „Ég verð nú að segja það að mér fannst FH-ingarnir frábærir í þessum leik og þetta var frábær handboltaleikur. Hann hefði getað farið í báðar áttir og endað beggja megin, en sem betur fer endaði þetta hjá okkur.“ Þetta er það sem við viljum standa fyrir Valsmenn lentu nokkru sinnum tveimur mörkum undir og var oft á tíðum mikill meðbyr með FH á þeim köflum. En hvers vegna náðu leikmenn Ágústs alltaf að snúa leiknum aftur? „Menn bara misstu ekkert trúna. Við vorum líka tveimur þrem yfir og þetta sveiflaðist aðeins. Mér fannst við bara ná að stilla okkur vel af. Við fengum bara framlag frá mörgum leikmönnum, þetta var bara ekta liðsheildar sigur og það er eitthvað sem við viljum standa fyrir. Við erum að dreifa mörkunum vel og fá framlag frá öllum beggja megin á vellinum. Þá erum við sterkir og erfitt að vinna okkur þegar staðan er þannig á liðinu.“ Næsti leikur í einvíginu er á mánudaginn og segir Ágúst undirbúninginn fyrir þann leik ekkert frábrugðin þeim undirbúningi sem verið hefur, þrátt fyrir að titill sé undir. „Það er bara það sama og fyrir alla þessa leiki. Við mættum síðast í Kaplakrika og vorum ekki tilbúnir og að mæta í Kaplakrika er ekkert einfalt. Þeir eru gríðarlega sterkir þar. Núna tökum við bara frídag á morgun og hvílum okkur vel. Í svona seríum getur allt gerst.“
Olís-deild karla Valur FH Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira