Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar 30. apríl 2026 12:32 Ég hef búið í Kópavogi frá tveggja ára aldri, með smávægilegum hléum þegar ég stundaði nám við Háskóla Íslands og síðar framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Í dag nýt ég þeirra forréttinda að geta valið mér og minni fjölskyldu búsetu hvar sem ég kýs. Val mitt er þó skýrt: ég vil búa í Kópavogi. Það er einfaldlega gott að búa hér og ég vil hvergi annars staðar búa. Ég er Kópavogsbúi og ég er stoltur af því. En hvað er það sem gerir Kópavog að svona góðum stað til að búa á? Fyrir utan góða staðsetningu og öfluga nærþjónustu er það fyrst og fremst traust og ábyrg stjórnsýsla. Kópavogur er vel rekið sveitarfélag sem stenst allan samanburð við önnur bæjarfélög á Íslandi. Áhersla hefur verið lögð á hófsemi í álögum á bæjarbúa og skattstofnar ekki fullnýttir nema nauðsyn beri til. Þetta skiptir máli fyrir fjölskyldur og fyrirtæki í bænum og stuðlar að heilbrigðu rekstrarumhverfi. Slík nálgun er ekki sjálfgefin heldur afrakstur markvissrar og ábyrgrar stefnu. Við hjónin eigum fjóra uppkomna syni sem allir hafa gengið í gegnum leik-, grunn- og framhaldsskóla í Kópavogi. Heildarmyndin af skólastarfi bæjarins er góð. Í upphafi þess kjörtímabils sem nú er að ljúka voru leikskólamálin komin í ákveðinn vanda — sumir hafa kallað það þrot — en undir styrkri forystu Framsóknar í Kópavogi var ráðist í nauðsynlegar umbætur. Kópavogsmódelið var innleitt og hefur vakið athygli víða um land; fleiri sveitarfélög hafa tekið það upp í einni eða annarri mynd. Í dag er staðan í leik- og grunnskólum bæjarins heilt yfir góð. Er allt fullkomið? Nei, að sjálfsögðu ekki. En nálgun Framsóknar hefur verið skynsamleg: að vinna jafnt og þétt í málum, með skýra sýn, mælanleg markmið og raunhæfa verkáætlun. Í þessum málaflokki þurfum við stöðugleika, ekki tilraunastarfsemi, U-beygjur eða kollvarpanir. Íþróttalíf í Kópavogi er einnig afar öflugt. Það er ekki tilviljun, heldur endurspeglar markvissa uppbyggingu íþróttamannvirkja og gott samstarf bæjarins við íþróttafélögin. Kópavogur er sannkallaður íþróttabær þar sem félögin í bænum bera af hvað varðar fjölda iðkenda og gæði starfs. Öflugt íþróttastarf, samhliða góðu skólakerfi, er mikilvæg undirstaða heilbrigðs bæjarlífs. Þjónusta við eldri borgara hefur jafnframt verið efld á undanförnum árum. Þetta er ört vaxandi hópur og mikilvægt að mæta þörfum hans af ábyrgð og virðingu. Ég treysti Framsókn best til að leiða þá vinnu áfram. Nú stöndum við Kópavogsbúar frammi fyrir mikilvægu vali í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Árangri okkar í Kópavogi má ekki taka sem sjálfsögðum hlut. Orri Vignir Hlöðversson skipar efsta sæti B-listans. Hann hefur reynst afar vel sem formaður bæjarráðs og býr yfir mikilli reynslu úr atvinnulífinu. Þá þekkir hann íþróttahreyfinguna vel eftir áralanga forystu þar. Björg Baldursdóttir, í 2. sæti listans, er margreyndur skólastjóri með djúpa og dýrmæta þekkingu á leik- og grunnskólamálum. Þetta er öflugt, reynslumikið og traust fólk sem á fullt erindi í bæjarstjórn Kópavogs. Þess vegna mun ég setja X við B þann 16. maí næst komandi. Ég vil áframhaldandi stöðugleika, framsækna stefnu og gott og reynslumikið fólk við stjórnvölinn. Höfundur er rekstrarhagfræðingur og 7. sæti framboðslista Framsóknar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Sjá meira
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun