Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar 30. apríl 2026 11:22 Þessa frægu setningu þekkja ansi mörg enda hefur hún fylgt þjóðinni, sem og ótal aðrar, allt frá því að hin víðfræga bíómynd Með allt á hreinu kom út árið 1982. Dúddi, hinn vinnusami rótari og bílstjóri Stuðmanna, var viss um að hann kæmist í stuð ef hann eignaðist hatt Kristins Styrkárssonar Proppé og var það auðsótt hjá sjálfum Stinna stuð að gefa hattinn eftir. Það er nefnilega mikilvægt að hafa svolítið stuð, hafa gaman og hvað er betra en að hafa gaman með góðu fólki. Fólk er nefnilega almennt félagsverur og við elskum og viljum hitta annað fólk. Við viljum tilheyra en nú á tímum er það því miður oft svo að fólk upplifi sig einmana og án tengingar við fólk utan sína nánustu, ef sú tenging er þá til staðar. Fólk sækir í gleðina - og stuðið Jazzþorpið í Garðabæ hefst í dag og stendur alla helgina á Garðatorgi og hefur það verið frábær vettvangur fyrir íbúa Garðabæjar til að koma saman síðustu ár. Það hefur tekist alveg frábærlega vel til að setja upp og halda þessa flottu hátíð árlega. Bæjarbúar flykkjast á Garðatorg til að sýna sig og sjá aðra. Börn og unglingar fylgja foreldrum sínum og vinir og nágrannar gleðjast saman og njóta samveru. Fólk úr öðrum bæjarfélögum kemur í Garðabæinn til að vera með og upplifa hátíðina með Garðbæingum. Það er öflug dagskrá, fallega skreytt Garðatorg, fullt af fólki og almenn gleði. Fólk sækir í gleðina - og stuðið. Það er hægt að hafa gaman í Garðabæ Það er nefnilega hægt að hafa mjög gaman í Garðabæ og sést það bersýnilega á því hversu vel Jazzþorpið er sótt. Það er greinilega stemning fyrir þorpinu á meðal bæjarbúa og því vert að velta fyrir sér, því ekki að gera meira? Jazzþorpið sýnir okkur hvað er hægt að gera á Garðatorgi og hvernig má nýta það vel, fallega og skemmtilega. Garðatorg á mikið inni og viljum við í Viðreisn nýta þetta stóra rými í miðbæ bæjarins miklu miklu betur. Fleiri ólík “þorp” væri til dæmis hægt að setja upp og liggur þá beinast við að setja upp fallegt jólaþorp. Við þurfum ekki að horfa lengra en til nágranna okkar í Hafnarfirði til að sjá hvað vel heppnað jólaþorp laðar margt fólk að og gerir mikið fyrir fólkið, samfélagið og bæinn, svo ég tali nú ekki um börnin. Nýtum Garðatorg betur Garðatorgið mætti einnig nýta til að halda þar tónleika, horfa á mikilvæga íþróttaviðburði á stórum skjáum, halda barnaskemmtanir, jafnvel setja þar upp leiksvæði eins og finna má víða utandyra í bænum. Ísland er kalt og blautt og oft snjóþungt yfir langan vetrartímann en börn vilja leika og foreldra vantar oft samastað utan heimilis til að gefa börnum sínum tækifæri á slíkum leik. Það gæfi foreldrum bæjarins líka tækifæri til að setjast niður og kynnast öðrum foreldrum meðan börnin leika – innandyra – og þannig gætum við eflt foreldrasamstarfið um leið. Við viljum gera Garðatorgið hlýlegra og vistvænna svo fólki líði þar vel og vilji þangað sækja. Hittumst oftar Flokkar Viðreisnar á landsvísu vilja almennt hafa gaman og skín það skýrt í gegn fyrir þau okkar sem fylgja fólki Viðreisnar, bæði í lifandi lífi sem og á samfélagsmiðlum, og það viljum við í Viðreisn í Garðabæ svo sannarlega einnig. Við teljum nefnilega að Garðabær sjálfur eigi einnig mikið inni þegar kemur að því að hafa gaman. Við viljum skapa tilefni og rými fyrir bæjarbúa til að hittast oftar, kynnast betur, verja tíma í samveru með nágrönnum og ekki síst að foreldrar og börn, fjölskyldur frá smábörnum upp í ömmur og afa, geti komið saman og haft gaman. Þá er einnig mikilvægt að við spyrjum okkur reglulega, hvað eru bæjarbúar og gestir okkar að sækja í? Hverju hefur fólk áhuga á og hvað er það sem tengir saman bæjarbúa og býr til samfélag? Gott, vinalegt og skemmtilegt samfélag. Sem íbúi og tveggja barna móðir í Garðabæ heyri og finn ég sterkt fyrir því að viljinn fyrir fallegu, vel nýttu og skemmtilegu Garðatorgi, þar sem tengingin er sterk milli svæðisins alls, ytra sem innra, er mikill og finnst mér mikilvægt að á það sé hlustað, brugðist við og verkin látin tala. Settu hattinn á C Við í Viðreisn viljum meiri gleði í Garðabæ. Við viljum sterkara og tengdara samfélag fyrir bæjarbúa. Við viljum rými og vettvang til að hittast, kynnast, gleðjast, standa saman og vera í stuði. Kjóstu Viðreisn í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningunum og settu þannig hattinn á C. Þá verður sko stuð! Höfundur skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar