Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar 27. apríl 2026 11:01 Það er fagnaðarefni að sjá aukna umfjöllun um hættuna á röskun veltihringrásar Atlantshafsins, AMOC. Um er að ræða mál sem snertir okkur öll, og sem ríkisstjórn Íslands hefur sett rækilega á dagskrá. Að tillögu Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku og loftslagsráðherra vísaði ríkisstjórnin málinu til þjóðaröryggisráðs í september 2025 svo það fái viðeigandi meðhöndlun og samhæfingu í stjórnkerfinu. Þá voru strax blikur á lofti miðað við nýjustu rannsóknir, og rannsóknir sem hafa komið fram í kjölfarið sýna að það er full ástæða til þess að líta á röskun hafstrauma sem ógn við öryggi Íslendinga. Ráðherra gerði hættuna á röskun Atlantshafshringrásarinnar að aðalumræðuefni sínu á COP30 í nóvember sl. og tók málið upp við Antonio Guitterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Þar hitti ráðherra líka Johan Rockström, einn fremsta loftslagsvísindamann heims, og skrifuðu þeir í kjölfarið saman greinina,Loftslagsáhætta er öryggismál sem birtist á Vísi, vef Stjórnarráðisins og í Dagens Nyheter í Svíþjóð. Málið vakti töluverða athygli, í erlendum fjölmiðlum.Reuters,CNN,Prospect Magazine, franska dagblaðiðLe Nouvel Obs fjölluðu um málið og blaðamaðurWashington Post sem gerði sér ferð hingað til Íslands til að hitta umhverfisráðherra og fjalla um viðbrögð Íslands, og áfram mætti telja. Raunar hefur ekkert mál orðið uppspretta jafna margra fjölmiðlafyrirspurna til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og þetta. Erlendis hefur verið litið til viðbragða Íslands, og sú forysta sem Ísland hefur veitt við að setja málið í samhengi við öryggi fólks, samfélaga og framtíðarkynslóða hefur vakið verðskuldaða athygli. Þetta hefur leitt til spennandi samtala við fólk um allan heim - vísindastofnana, háskóla og annarra stjórnvalda um samvinnu og samstarf. Hér gerum við ekkert ein. Aalþjóðlegt samstarf er forsenda þess að við náum árangri. Nýverið fór Jóhann Páll sérstaklega fram á að AMOC yrði sett á dagskrá á fundi umhverfisráðherra Norðurlandaráðs sem mun fara fram þann 6.-7. maí nk. í Köben. Norrænir vísindamenn hafa nýlega unnið greinargóða skýrslu um stöðu Norðurlandanna vegna AMOC og leggja til aðgerðir sem brýnt er að fylgt verði eftir. Samvinna og samstarf Norðurlandanna getur skipt sköpum máli fyrir framhald þessa máls og Ísland hefur tekið leiðandi stöðu í því samhengi. Í svörum finnska umhverfisráðherrans á finnska þinginu fyrir mánuði síðan, um AMOC, vísaði hún sérstaklega til samstarfs síns við Jóhann Pál vegna málsins. Hér heima hafa fundir með fulltrúum almannavarna, vísindasamfélags, stjórnarráðsins og undirstofnana farið fram og nú er að hefja göngu sína stýrihópur þvert á stjórnkerfið til að formgera og samhæfa viðbrögð. Verið er að hraða gerð áhættu- og viðkvæmnimats, undirbúa stefnu um náttúruvá og síðast en ekki síst auka áherslu á árangursríkar aðgerðir sem draga úr losun – því samdráttur í losun er besta leiðin til að takmarka líkurnar á hruni AMOC. Það er óhætt að taka undir með Ólafi Ragnari Grímssyni fyrrverandi forseta Íslands: við þurfum að tala meira og hærra um AMOC. Haustið 2024, á Arctic Circle, afhenti hópur vísindamanna opið bréf til norrænu ráðherranefndarinnar þar sem þau hvöttu til aðgerða. Í haust munum við nýta þann mikilvæga vettvang til þess að fjalla um málið. Það er ábyrgðarhluti að taka þessari ógn alvarlega og bregðast við henni af festu. Þar lætur ríkisstjórn Íslands sitt ekki eftir liggja. Höfundur er aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóna Þórey Pétursdóttir Hafið Öryggis- og varnarmál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar