Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Valur Páll Eiríksson skrifar 27. apríl 2026 10:41 Karlmaðurinn var sakaður um perraskap í samskiptum sínum við ungan iðkanda þar sem sjálfsfróun bar meðal annars á góma. Getty Dansfélagi Reykjavíkur var ekki heimilt að synja karlkyns dansara um félagsaðild sem sakaður var um ósæmilega hegðun. Dómstóll ÍSÍ hefur fellt synjunina úr gildi vegna skorts á lagagrundvelli.
RÚV greindi fyrst frá. Dansfélag Reykjavíkur hafði hafnað félagsaðild mannsins í desember og sagði hann ekki geta sótt um aðild fyrr en eftir fimm ár. Það var vegna ætlaðra brota mannsins á siðareglum í samskiptum við unga iðkendur árið 2021. Þau mál höfðu verið rannsökuð af lögreglu og héraðssaksóknara en ekki leitt til viðurlaga. Maðurinn leitaði til dómstóls ÍSÍ sem felldi þá synjun úr gildi þar sem DR hefði ekki lagagrundvöll fyrir synjuninni. Vísað væri til ákvæða í lögum ÍSÍ frá 2025 en ekki væri hægt að beita þeim afturvirkt vegna meintra brota fjórum árum fyrr. Danssamband Íslands hefði þurft að koma að málinu og áminna eða víkja viðkomandi frá félagi. „Hér sé verið að vísa til ætlaðra brota kæranda frá árinu 2021 og augljóst sé að kæranda verði ekki sett agaviðurlög vegna ætlaðra brota fjórum árum seinna með því að synja honum um félagsaðild að félagi sem samkvæmt lögum sínum skal vera öllum opið. Ef ætlunin hefði verið að áminna kæranda, eða víkja honum úr félagi, hefði það verið verkefni DSÍ, sem hafi þó ekki tekið neina formlega, lögmæta ákvörðun þess efnis,“ segir í dómnum. Hafi sent til barnungs iðkanda að hann væri að runka sér DR vísaði til skriflegra samskipta mannsins frá 2021 við barnungan iðkanda. Í þeim skrifum spyr hann hvort viðkomandi sé „til í perr“ auk þess sem hann sendi að hann væri að hugsa um viðkomandi og að runka sér. „Sem dæmi má nefna að A spyr barnungan iðkanda hvort hún hafi ,,verið bundin“ og er þá að vísa til kynlífsathafnar. Þá segir hann í skilaboðum til sama iðkanda að hann hafi verið að ,,sjá hvað hann gæti farið langt í djóki/perri“ með iðkendanum. Önnur ósæmileg skilaboð frá A til iðkandans eru: ,,til i eh perr?“.“ „Í skilaboðum A til annars barnungs iðkenda spyr hann fyrst: ,, what r u doing sweetie“ og þegar iðkandinn segist vera að vinna og spyr til baka hvað hann sé að gera þá svarar A: ,,mostly thinking about you but also gym shopping relaxing eating sleeping and jerking off“. Þá sendi hann mynd af sér berum að ofan til iðkandans,“ segir í vörn DR í málinu og vísað í skilaboð mannsins. Endurskoða lögin Í fundargerð stjórnar ÍSÍ frá því 17. mars segir að nokkrar umræður hafi verið um dóminn á stjórnarfundi sambandsins. Stjórnin hyggist taka til skoðunar að breyta lögum sínum vegna niðurstöðu dómsins með hliðsjón af ríkri skyldu íþróttahreyfingarinnar um öruggt umhverfi fyrir börn og ungmenni.
ÍSÍ Dans Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Sjá meira