Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar 24. apríl 2026 21:18 Ég sé að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar sér stóra hluti í málefnum okkar yngstu leikskólabarna. Reyndar ekki undir hatti leikskólans heldur með nýju dagGÆSLUkerfi. Það er eitthvað kunnuglegt við þessa stefnu, kannski vegna þess að hún hljómar eins og aftan úr grárri forneskju. Þetta er pólitísk stefna sem höfðar til tilfinninga foreldra ungra barna og lofar lausnum á raunverulegum vanda: biðlistum, skorti á leikskólaplássum og óöryggi fjölskyldna um hvað tekur við að loknu foreldraorlofi. En þegar stefnan er lesin í heild vakna hins vegar ýmsar óþægilegar spurningar. Hvað felst í þeim lausnum sem boðið er upp á?Er verið að ræða um „geymslu“ fyrir börn eða leikskóla þar sem börn fá að njóta bernsku sinnar? Í stefnunni er rætt um að auka framboð, eyða biðlistum og tryggja pláss innan hverfa. Þetta eru mikilvægar aðgerðir. En orðræðan sem er áberandi snýr að plássum, framboði og uppbyggingu með aðkomu utanaðkomandi aðila. Tengja rýmin eða eins og sagt er í sjálfri stefnunni plássin, atvinnu foreldra (og þarf af leiðandi ekki hverfum). Þetta er tæknileg umræða sem minnist ekki einu orði á það sem ég tel að foreldrar ungra barna velti fyrir sér. Þættir eins og hvernig eigi að tryggja gæði samskipta, faglegt starf, eða hvernig best sé að styðja þroskakosti yngstu barnanna, þetta eru þætti sem virðast vera aukatriði. Það má meðal annars greina í umræðu um að draga úr menntun leikskólakennara. Í stefnunni, eins og hún birtist mér, er barnið sjálft aukaatriði, það eins og hver annar hlutur sem þarf að koma fyrir í Excel-skjali. Stefnan snýst um að mæta þörfum vinnumarkaðsins, skipuleggja hvar börnin eiga að vera á meðan foreldrar snúa hjólum atvinnulífsins. Hún fjallar ekki um það umhverfi sem börnum er búið eða ætlað. Stefnan snýst um framboð en ekki rétt barna til menntunar og manngæsku. Nýtt dagGÆSLUstig fyrir 12–30 mánaða börn Hugmyndin um nýtt daggæslustig fyrir 12–30 mánaða börn er sett fram sem lausn á þessum stóra samfélagsvanda. En í þeirri lausn felst grundvallar breyting á því hvernig við sem samfélag hugsum um leikskóla og yngstu börnin. Breyting sem ég tel að kalli á samtal. Fyrir mörgum árum kom út fræg bók þar sem spurt var: Er leikskólinn geymsla eða uppeldisstaður? Hér er ekki einu sinni verið að velta þeirri spurningu fyrir sér. Hugtakið sem notað er, er gæsla, orð sem er náskylt geymslu og ljóstrar upp um bæði kröfur til umgjörðar og viðhorf til yngstu barnanna. Vinnumarkaðurinn og þarfir hans eru settar ofar þörfum barna. Það er sorlegt. Og hverjir eiga svo að framkvæma þessi loforð? Fyrir ekki svo löngu líkti oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni fjársveltu leikskólakerfinu við lágvöruverslanir með tómar hillur, þar sem auglýstar væru glæstar vörur en efndir engar. Þegar fólk ætlaði sér að sækja vöruna biðu þeirra tómar hillur. Ef leikskólinn er lágvöruverlsun má velta fyrir sér hver ábyrgð eigenda er. Í loforðalista flokksins bendir oddvitinn ekki á lausnir innan borgarkerfisins. Þess í stað er ætlunin að fela einkaaðilum að leysa vandann og tengja leikskóla og daggæslu við vinnustaði, þar sem hraði og skilvirkni taka yfir hlutverk leikskólans sem samfélagslegs rýmis sem börn eiga rétt á. Það væri gleðilegt ef flokkar og frambjóðendur legðu meiri áherslu á að leikskólinn er ekki fyrst og fremst staður þar sem börn eru geymd til að þjóna fullorðnum og vinnumarkaðnum. Leikskólinn er fyrst og fremst staður fyrir börn til að vaxa og dafna undir handleiðslu fagfólks. Hann er rými þar sem eitt það mikilvægasta sem siðmenntuð samfélög byggja á mótast: Að börnum lærist að vera hvert öðru systir og bróðir, í leik og í samskiptum við jafningja. En til þess að skapa slíkt rými þarf góða leikskóla með leikskólakennurum. Es. Leiðin til að fjölga leikskólakennurum felst ekki í að gengisfella menntun þeirra og störf. Höfundur er Reykvíkingur, leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri og núverandi háskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar