Sport

Þjálfari Patriots í leyni­legu ástar­sam­bandi með blaða­manni í mörg ár

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dianna Russini og Mike Vrabel virðist hafa verið að slá sér upp í nokkuð langan tíma.
Dianna Russini og Mike Vrabel virðist hafa verið að slá sér upp í nokkuð langan tíma.

Þjálfari New England Patriots í NFL deildinni og háttsett blaðakona hjá The New York Times virðast hafa átt í leynilegu ástarsambandi um árabil. Hann hélt starfinu en hún er orðin atvinnulaus.

Leynilegt ástarsamband þjálfarans Mike Vrabel og blaðakonunnar Dianna Russini var gert opinbert af bandarísku slúðurblöðunum Page Six og TMZ nýlega.

Þau eru bæði gift öðru fólki og lentu því í klandri þegar myndir birtust af þeim leiðast, knúsast og kyssast á lúxushóteli í Arizona í byrjun þessa mánaðar.

Vrabel og Russini reyndu fyrst að gera lítið úr málinu og sögðu þetta hafa verið saklausan vinahitting. En í síðustu viku viðurkenndi Russini hvað hefði gengið á og sagði starfi sínu lausu hjá The New York Times.

Vrabel hélt þjálfarastarfi sínu hjá Patriots en var ekki viðstaddur nýliðavalið í vikunni og reynir nú að bæta fjölskyldunni þetta allt saman upp, samkvæmt yfirlýsingu sem hann sendi ESPN.

Nú virðist svo vera komið í ljós að þetta leynilega ástarsamband teygir sig töluvert lengra aftur í tímann en upphaflega var talið.

TMZ hefur birt myndir af þeim í spilavíti í Mississippi árið 2024 og Page Six svaraði með því að birta myndir af þeim frá árinu 2020.

Ef rétt reynist hafa þau þá átt í samlotum síðustu sex ár að minnsta kosti. Á þeim tíma hefur Vrabel eignast tvö börn með eiginkonu sinni. 

Russini gekk í hjónaband síðar á árinu 2020 og hefur verið gift síðustu sex árin tæplega. Hún eignaðist son árið 2021 sem hún skírði Michael, í höfuðið á hverjum er ekki vitað fyrir víst.  

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×