Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2026 12:57 Stefán Pálsson og Andrea Kolbeinsdóttir þekkja það að hlaupa til sigurs og eru Íslandsmeistarar 2026 í 5 km götuhlaupi. Samsett/@stebbz/@andreakolbeins Gífurleg spenna var í Víðavangshlaupi ÍR í dag þar sem aðeins ellefu sekúndur skildu á milli 1. og 6. sætis í keppni karla. Andrea Kolbeinsdóttir bætti eigið Íslandsmet.
Stefán Pálsson úr Ármanni og Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR komu fyrst í mark og urðu þar með Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi. Þetta var í 111. sinn sem Víðavangshlaup ÍR fer fram og eins og fyrr segir var spennan mikil í miðborg Reykjavíkur í dag. Stefán kom í mark á 15 mínútum og 18 sekúndum, aðeins fjórum sekúndum á undan hinum 17 ára gamla Davíð Frey Magnússyni sem varð í 2. sæti. Fast á hæla þeirra komu svo kunnugleg nöfn en Þorsteinn Roy Jóhannsson varð í 3. sæti á 15:26 og Arnar Pétursson fjórði á 15:28, sekúndu á undan þeim Jökli Bjarkasyni og Stefáni Kára Smárasyni. Andrea stórbætti metið sitt Sigur Andreu í kvennaflokki var mun öruggari en hún kom í mark á 16:02 mínútum og setti þar með glæsilegt Íslandsmet. Hún bætti fyrra met sitt frá síðasta sumri um heilar 16 sekúndur. Andrea var meira en mínútu á undan Halldóru Huld Ingvarsdóttur sem varð í 2. sæti á 17:16. Íris Anna Skúladóttir varð svo þriðja, þrettán sekúndum á eftir Halldóru. Í fyrra varð Arnar Íslandsmeistari á 15:33 mínútum, sjö sekúndum á undan Jökli og þrettán sekúndum á undan Stefáni sem fagnaði sigri í dag. Andrea hefur hins vegar einokað efsta sætið kvennamegin og nú unnið Víðavangshlaup ÍR sex ár í röð.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira