Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar 22. apríl 2026 13:50 Það er ekki leiðinlegt að vera leikskólakennari. Vinnan mín er skemmtileg. Verkefnin eru skemmtileg, fólkið yndislegt og börnin best. Það sem er hins vegar verst við vinnuna mína eru kosningaloforð pólitíkusa. Fólk í frama poti sem hefur sjaldnast unnið í leikskóla en eru sjálfmenntaðir sérfræðingar í leikskólamálum. Það er flott í kosningabaráttu og slagorðum. Þau virðast þekkja starfið út í gegn því þeir hafa verið foreldrar. Ég veit ekki hvort það hafi verið sagt áður upphátt en það er ekki það sama að vera með barn í leikskóla og að vera leikskólakennari sem hefur helgað lífi sínu menntun ungra barna. Það er ekki eins að ala upp sín eigin börn og vinna við að mennta ungvið landsins. Talandi sem móðir og leikskólakennari, þetta er tvennt ólíkt. Þegar fer að nálgast kosningar breytast þó pólitíkusar í sjálflærða sérfræðinga í skólamálum. Leikskólarnir verða pólitískt útspil. Allt það besta fyrir fjölskyldufólk. Þó oftast án þess að spyrja fyrsta menntastigið hvernig heppilegast væri að vinna að breytingum. Samtalið er ekki til. Það er flótti úr stéttinni minni. Það er staðreynd og það er eitt stærsta vandamálið. Þyngstu áhrifaþættir álags í leikskólum eru: Í fyrsta lagi : Endalaus nýliðun. Margir leikskólar eru að þjálfa inn margt starfsfólk á haustin. Leiðbeinendur eru gríðarlega mikilvægur hlekkur, en það er erfitt að reka menntastofnun þegar helsta vinnuafl eru ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á atvinnu markaði. Í öðru lagi er það álag vegna óviðunnandi fagprósentu innan leikskólanna. Það er gríðarlegt álag þegar deildarstjóri er eini fagmenntaði einstaklingurinn á deildinni. Þá fyrir utan alla ábyrgðina sem er á deildarstjóra í daglegu starfi, er mikið álag að fræða og þjálfa upp nýja starfsmenn ár hvert. Í þriðja lagi er álag sem felst í því að vinna vanþakklátt starf. Ekki einungis vanþakklátt vegna þess hvað stendur á launaseðlinum hvern mánuð, heldur líka vegna endalausra frétta og fjölmiðlaumræðna um hve hrikalegt, hræðilegt og ömurlegt leikskolakerfið er. Sama kerfi og leikskolakennarar reyna eftir bestu getu og alúð að vinna í. Reyna að skipta máli fyrir hvern einstakling. En aðstæðurnar eru hrikalegar, óboðlegar satt að segja. Fyrir börn og fullorðna. Fjórða lagi er það einmitt aðstæðurnar sem við vinnum í. Á mörgum leikskólum eru varla sæti við hæfi fyrir fullorðna, hljóðvist er ófullnægjandi og almennar vinnuaðstæður eru óboðlegar. Þetta er ekki endanleg upptalning og að lokum er einn risa áhrifavaldur, líkt og kom fram hér fremst, þegar stjórnmálamenn halda að þeir geta leyst málin með því að veifa töfrasprota og finna enn eina skipulagslausnina. Skipulagslausn sem þýðir auka vinnu, fyrir engan auka pening, til að innleiða enn eina snilldina. Eitthvað sem á að bjarga málunum. Eins og um árið þegar allskonar leikskólar i Reykjavík voru sameinaðir glórulaust. Svo þegar næstu komast í stjórn þá er byrjað uppá nýtt. Þurrkað út gömlu snilldina og gert rými fyrir nýju snilldina. Án þess að ræða við grasrótina. Kæru frambjóðendur í Reykjavík og víðar. Ef það er ekki viljinn að leikskolakerfið í ykkar sveitafélagi hrynji endanlega þá myndi ég stíga varlega til jarðar. Sveitastjórn breytir ekki lögum um lengd háskólanáms, lögbundinn undirbúningstíma eða hvort leyfisbréf kennara gefi okkur réttindi á öllum skólastigum, þannig til að styggja ekki leikskólakennara ættu flokkar að hætta að koma með glórulausar alhæfingar til að slá um sig í kosningabaráttu. Því það er flótti úr stéttinni, og hann verður meiri ef blómum skreytt virðingarleysi gagnvart leikskólastiginu hættir ekki. Það gerir virðingarleysið ekki minna að byrja allar greinar, pistla eða ræður á því hve mikilvæg stétt við erum. Byrja á að fylla okkur ábyrgðartilfinningu gagnvart samfélaginu og í kjölfarið eigum við að taka á okkur vanvirðingu, skerðingu á réttindum og gjaldfellingu náms okkar. Brosa svo og kinka kolli uppfull af stolti. Því við erum svo mikilvægur hlekkur, sá mikilvægasti svo aðrir geti sinnt sinni vinnu. Það er í raun á herðum okkar hagkerfið og kvenréttinda baráttan. Á sama tíma og mig hryllir við kosningarbaráttu sem snýst um að verðfella mína stétt þá vil ég líka benda á þá flottu hluti sem Kópavogsmódelið hefur gert fyrir leikskólamál í Kópavogi. Í einlægni bið ég um að þeir sem taka við stjórn í bæjarfélaginu mínu að taka samtalið við leikskólastigið áður en drasktískar ákvarðanir verða teknar. Því hvað sem óvægin umræða um Kópavogsmódelið segir þá virkar það. Punktur. Ég vil enda á að óska öllum velfarnaðar í komandi kosningabaráttu. Ég trúi á það góða í fólki og veit að allir eru bara að gera sitt besta. En viljið þið elsku pólitíkusar kynna ykkur málin áður en þið komið með blammeringar sem þið hafið ekki hundsvit á. Viljið þið gera það að koma og kynna ykkur kerfið innan frá, hlustið á fólkið á gólfinu. Því ótrúlegt en satt, þá vita þau manna best hvað má betur fara. Höfundur er aðstoðarleikskólastjóri á leikskóla í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun