Sumarið kemur alltaf á óvart í Kópavogi Hildur María Friðriksdóttir og Örn Arnarson skrifa 21. apríl 2026 12:02 Það er eitthvað undarlegt við það hvernig jafn fyrirsjáanlegur atburður og sumarið virðist enn kalla á síðbúið skipulag hjá Kópavogsbæ. Líkt og undanfarin ár þurfa foreldrar að sækja um pláss á sumarnámskeiðum Kópavogsbæjar sem eru ekki nægilega mörg til þess að anna eftirspurn. Sveitarfélagið þarf að gera betur í að auka framboð námskeiða og einfalda þeim að sækja námskeið í sínum hverfum. Nú eru rúmar fjórar vikur síðan opnað var fyrir skráningu í flest einkarekin sumarnámskeið og mörg þeirra eru nú þegar orðin full. Kópavogsbær birti ekki fyrirkomulag sumarfrístundarinnar fyrr en í síðustu viku og hún verður, líkt og í fyrra, aðeins í Hörðuvallaskóla. Fyrir fjölskyldur í neðri byggðum Kópavogs er það einfaldlega ekki raunhæf lausn. Á annatíma getur það tekið 15 til 20 mínútur að keyra hvora leið, og fyrir þau sem treysta á strætó getur ferðin tekið 45 mínútur eða meira. Þá er ónefnt að foreldrar þurfa að koma sér til vinnu. Við vitum af eigin raun hvað gerist þegar framboð sumarnámskeiða er of lítið og upplýsingarnar koma of seint; fjölskyldur neyðast til að púsla saman sumrinu með úrræðum sitt í hvorum enda bæjarins, ef pláss fæst yfirleitt. Það er hvorki góð né sanngjörn lausn. Þjónustan á að taka mið af daglegu lífi fólks og vera raunhæf fyrir fjölskyldur. Það þarf hins vegar ekki að finna upp hjólið í þessum efnum. Hafnarfjörður hefur þegar opnað fyrir skráningu í sumarnámskeið, en þar eru öll frístundaheimili opin frá 12. til 29. júní og bærinn býður síðan upp á miðlæga frístund frá 6. til 17. júlí í tveimur skólum. Við gerum þá einföldu og eðlilegu kröfu að fjölskyldur í Kópavogi njóti sambærilegrar þjónustu. Þá er ótalið að þjónustan í Kópavogi er dýrari en í Hafnarfirði. Þegar sveitarfélög eru of sein með upplýsingar og bjóða ekki upp á nægilega mikið af sumarnámskeiðum finnur fólk mismikið fyrir því. Þau sem hafa mest fjármagn, mestan sveigjanleika og bestu samgöngurnar komast frekar í gegnum sumarið. Foreldrar í verri stöðu eiga það á hættu að sitja eftir og fá ekki þjónustu fyrir börnin sín yfir sumarið. Kópavogsbær getur gert betur. Foreldrar eiga rétt á upplýsingum fyrr, fleiri raunhæfum úrræðum og þjónustu sem tekur mið af þörfum fólks í daglegu lífi. Sumarið kemur á sama tíma á hverju ári og flestir foreldrar hafa takmarkaðan fjölda orlofsdaga. Upplýsingar þurfa að berast fyrr, þær þarf að auglýsa betur og sveitarfélagið þarf að koma betur til móts við foreldra barna á yngsta stigi grunnskóla. Höfundar skipa 6. og 7. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar