Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli Valur Páll Eiríksson skrifar 21. apríl 2026 10:02 Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir ávallt áskoranir fylgja fyrsta ári nýs grass. Vísir/Bjarni Tættur Laugardalsvöllur blasti við landanum þegar kvennalandsliðið í fótbolta atti kappi við Úkraínu og England á dögunum. Margur klóraði sér í kollinum yfir því hvernig á því stæði þegar nýlega hafi nýtt hybrid undirlag verið lagt á völlinn. Það á sér hins vegar eðlilegar skýringar.
Um var að ræða fyrstu leikina eftir fyrsta vetur nýs undirlags. Það var bersýnilegt strax snemma leiks milli Íslands og Úkraínu fyrir viku síðan að völlurinn væri gjarn á að tætast upp og sjá mátti grastæjur um allan völl eftir því sem á leið. Vallarstjóri Laugardalsvallar segir þessa fyrstu prófraun hins vegar hafa gengið vel. Búast megi við því að völlurinn slitni aðeins eftir frost sem var viku fyrir leikinn við Úkraínu. Völlurinn hafi þá ekki verið laus í sér þrátt fyrir að slitna upp og leikmenn hafi ekki verið í vandræðum með að fóta sig. Þar komi hybrid-grasið sterkt inn. „Fyrst og fremst er hybridið hugsað til að halda jarðveginum saman. Það er ekki til að auka sprettu eða neitt þannig. Prófraunin okkar í þessum leikjum núna var að hybridið héldi vellinum vel saman,“ „Leikmenn voru ekki að renna, hann var sléttur og boltinn rúllaði vel. Án hybridsins hefði hans tæst meira upp og svo ég best viti meiddist enginn. Þannig að við vorum tiltölulega sátt með útkomuna,“ segir Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri í Laugardal, í Sportpakkanum á Sýn. Miklar væntingar Margur bjóst við byltingu hvað Laugardalsvöll varðar með lagningu nýs grass og kom það því mörgum í opna skjöldu að sjá völlinn tætast svo upp. Þar segir Kristinn hins vegar margt koma saman. Í raun hafi heppnast vel að ná vellinum leikfærum fyrir þessa tvo leiki og enskir fulltrúar sem komu hingað til lands að taka völlinn út nokkrum mánuðum fyrir leik höfðu satt best að segja enga trú á því að það myndi takast að spila á Laugardalsvelli. Sendinefndir bæði Englands og Úkraínu hafi hrósað KSÍ fyrir umgjörðina, þrátt fyrir skot Sarinu Wiegman, þjálfara Englands, á undirlagið eftir leik. „Það var mikið umtal um að þetta væri bylting og væri að gera rosalega gott fyrir komandi vetrartíð og haustleiki og svona. Auðvitað býst fólk við iðagrænum velli en þannig virkar þetta ekki alveg,“ „Hann mun vera svona tættur af og til, hvort sem það er í desember eða febrúar eða eitthvað. Við vorum hérna 24/7 í tvo mánuði að hugsa um þennan leik. Og sem betur fer tókst okkur að spila þessa leiki,“ segir Kristinn. Ungt gras grípi pestir eins og ung börn Nýju grasi og undirlagi fylgi þá einnig vaxtaverkir. Rétt eins og hjá ungabörnum, þá tekur tíma fyrir það að þroskast, fyrir völlinn að taka sig og venjast aðstæðum. Völlurinn missti töluvert gras í vetur og til stendur að sá í völlinn í næstu viku, fyrir næsta verkefni þegar Spánverjar koma á Laugardalsvöll eftir tvo mánuði eða svo. „Það er önnur áskorun. Þetta er árs gamall völlur. Þetta var fyrsti vetur sem plantan fer í gegnum. Hún er veik. Þeir sem eru foreldrar þekkja það með ungabörn, að þau grípa pestir, en þetta verður auðveldara með árunum,“ „Fyrsti veturinn er krefjandi og grasið greip nokkrar sýkingar. Við misstum gras hérna í mars en núna er vinna hafin við að gera völlinn enn betri fyrir júní-leikina,“ segir Kristinn. Innslagið úr Sportpakka gærkvöldsins má sjá í spilaranum.
Laugardalsvöllur KSÍ Landslið karla í fótbolta Landslið kvenna í fótbolta Nýr þjóðarleikvangur Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira