Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. apríl 2026 09:02 Kjartan Henry Finnbogason reyndist örlagavaldur í baráttu Bröndby og Midtjylland um danska meistaratitilinn 2018. sýn sport Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna.
Fyrir átta árum var Kjartan leikmaður Horsens sem mætti Bröndby í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar 2018. Bröndby var í harðri baráttu við Midtjylland um meistaratitilinn. Bröndby komst í 0-2 með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks og þannig var staðan allt þar til mínúta var eftir. Þá var komið að þætti Kjartans. Hann minnkaði muninn með skoti beint úr aukaspyrnu og í uppbótartíma skoraði hann svo jöfnunarmark Horsens. Það fór vægast sagt illa í blóðheita stuðningsmenn Bröndby. „Þeir ætluðu að fara í sína eigin leikmenn, komu inn á völlinn, gæjar með tattú í andlitinu og svona Home Alone-bófa grímu. Það varð allt vitlaust. Við vorum læstir inni í klefa, lögreglan kom og það kom auka stuðningur í gæslu og við máttum ekki fara út fyrr en það væri búið að leysa þessi mál og það tók alltof mikinn tíma,“ sagði Kjartan í sjöunda þætti Augnablikanna, „Bröndby-böðullinn.“ Klippa: Augnablikin - Bröndby-böðullinn Ástandið varð enn alvarlegra þegar stuðningsmenn Bröndby gerðu sér ferð að heimili Kjartans. „Konan mín var að læra lögfræði á þessum tíma og var heima í prófum. Við vorum með aðstoð, íslenska au-pair stelpu, og við vorum með tvö börn. Stuðningsmenn Bröndby voru búnir að finna út hvar ég ætti heima. Á lestarstöðinni, á leiðinni frá vellinum, komu þeir við heima hjá mér,“ sagði Kjartan. „Hún hringdi í mjög hrædd. Það voru menn fyrir utan að banka á rúður og sparka í hurðina. Og ég var læstur inni í klefa. Þá varð ég mjög reiður og hræddur og á endanum braust ég út, stalst út, stalst út, fór ekkert í sturtu, bara einhverja þjálfaraúlpu, hljóp út í bíl og keyrði heim án leyfis.“ Jafn hataður og Kjartan er af stuðningsmönnum Bröndby er hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum FC Kaupmannahafnar sem voru honum afar þakklátir fyrir að eyðileggja titilvonir erkifjendanna. Hann fær enn góðar kveðjur frá þeim á ári hverju. Brot úr „Bröndby-böðlinum“, sjöunda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 18:05 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Danski boltinn Augnablikin Mest lesið Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Fótbolti Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari Fótbolti Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Enski boltinn Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Enski boltinn „Gríðarlega stolt af þessu afreki og gaman að eiga þetta á ferilskránni“ Sport „Ég elska það sem ég er að gera“ Enski boltinn „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Enski boltinn Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Enski boltinn Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ „Settum meiri pressu á þær í seinni hálfleik“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Leik lokið: Ísland - England 0-1| Hetjuleg barátta í seinni dugði ekki til Hörmungar Brann halda áfram Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Byrjunarliðið gegn Englandi: Fjórar breytingar og afmælisbarnið á bekkinn Bjarki Steinn nálgast ítölsku úrvalsdeildina á ný Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn „Þær leita rosalega mikið upp kantana“ Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum „Fínt fyrir okkur en kannski ekki jafn fínt fyrir Englendinga“ Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Sjá meira