Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2026 08:00 Gullverðlaunahafinn Yang Yutong og bronsverðlaunahafinn Ni Lihua stilltu sér upp og þar eru magaplástrarnir mjög áberandi ekki síst á Yutong. @worldathletics Kínversku kappgöngumennirnir sem slógu í gegn á heimsmeistaramóti tuttugu ára og yngri í Brasilíu vöktu ekki bara athygli fyrir að tryggja sér verðlaun.
Sigurmyndirnar frá verðlaunapalli sunnudagsins í 10 kílómetra kappgöngu kvenna vöktu nefnilega viðbrögð og spurningar í frjálsíþróttaheiminum. Þegar gullverðlaunahafinn Yang Yutong og bronsverðlaunahafinn Ni Lihua stilltu sér upp með kínverska fánann voru þær báðar með plástur á maganum. Umfjöllun norska ríkisútvarpsins. NRK Sport Sömu plástrar huldu naflann meðan á allri 10 kílómetra keppninni stóð. Hvers vegna? spurðu margir sig. Sumir höfðu sínar kenningar. „Það virðist sem þeir vilji vernda naflann, þar sem það er svæði með lítilli fitu í kring. Það er til kínversk kenning um að það geti komið í veg fyrir krampa, magavandamál og kulda,“ sagði frjálsíþróttasérfræðingurinn Vebjørn Rodal við norska ríkisútvarpið. Læknir norska frjálsíþróttalandsliðsins, Ove Talsnes, telur ekki að þetta bragð geti haft nein læknisfræðileg áhrif. Hann og hans eigin frjálsíþróttamenn vilja heldur ekki prófa neitt nýtt sem hefur ekki sannaða virkni samkvæmt vísindum. „Ég veit ekki til þess að það hafi nein áhrif til að koma í veg fyrir sýkingar að plástra naflann. En við sjáum jú reglulega að slíkar hugmyndir koma upp,“ sagði Talsnes við NRK. Ein besta kappgöngukona Noregs fyrr og síðar, Kjersti Tysse Plätzer, bendir á að kappgöngumenn fái oft magavandamál í keppnum þar sem búkurinn snýst mikið. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að maginn verði ekki fyrir neinni truflun. Tysse Plätzer segir að kínverska bragðið sé ekkert nýtt. Hún veit ekki hvort það sé eingöngu til að gefa lyfleysuáhrif en sumir hafa velt fyrir sér hvort að það gæti verið eitthvað slíkt í gangi. „Ég get ekki tjáð mig um það, en að þeir noti eitthvað sem hefur áhrif á búkvöðvana í kappgöngu er alveg eðlilegt,“ sagði Tysse Plätzer við NRK. View this post on Instagram A post shared by World Athletics (@worldathletics)
Frjálsar íþróttir Kína Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjá meira