Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 20:45 Af Iceland Airwaves, einhvern tímann um árið. Joana Fontinha Reykjavíkurborg hyggst leggja tíu milljónir króna í að efla tónleikastaði í miðbænum og byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir á tólf til átján hljómsveitir. Er þetta hluti af endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða, sem var fyrst settur á laggirnar í kórónuveirufaraldrinum.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Úrbótasjóður tónleikastaða verði endurreistur og tíu milljónum króna varið til sjóðsins til úthlutunar á þessu ári. Markmiðið sé að efla tónleikastaði í miðborginni. Þá verður tveimur milljónum varið í að byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir tólf til átján hljómsveitir. Tónleikastöðum í Reykjavík hefur farið fækkandi undanfarin ár og vakti fækkunin jafnvel athygli breska dagblaðsins The Guardian haustið 2024. Spretthópur um lifandi tónlistarflutning í Reykjavík skilaði aðgerðatillögum 27. febrúar en hópnum var ætlað að meta stöðu lifandi tónlistarflutnings í borginni og leggja fram tillögur að bættri aðstöðu til tónleikahalds, tónlistarfólki, tónleikastöðum, almenningi og ferðafólki til heilla. Niðurstöður sýna að tónleikastaðir glíma við kerfislægan rekstrarvanda og telur spretthópurinn aðstöðu til lifandi tónlistarflutnings í miðborg Reykjavíkur kalla á aðgerðir svo áhrif núverandi stöðu setji ekki svip sinn á næstu áratugi íslensks tónlistarlífs. Mikilvægt sé að auka sýnileika og aðgengi lifandi tónlistar. Með markvissum aðgerðum megi snúa þróuninni við og styrkja stöðu íslenskrar tónlistar. Spretthópurinn skilaði fjórum aðgerðatillögum, meðal annars að endurvekja Úrbótasjóð tónleikastaða, sem starfaði á árunum 2020 til 2022, en hlutverk hans var að styðja við tilvist minni og miðlungsstórra tónleikastaða í Reykjavík sem og menningarhúsa sem sinntu lifandi tónlistarflutningi. „Styrkir úr úrbótasjóði hafa haft langvarandi og kröftug áhrif og á fundi menningar- og íþróttaráðs þann 10. apríl síðastliðinn var samþykkt að endurvekja sjóðinn og verja til hans tíu milljónum króna til úthlutunar á þessu ári,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Öðrum tillögum spretthópsins verður vísað til borgarráðs en þær fólu meðal annars í sér einföldun leyfisveitingaferlis tónleikastaða og að tónleikastaðir yrðu viðurkenndir sem mikilvægir menningarlegir innviðir. Þá segir að Reykjavík hyggist einnig styðja við Hafnarhaus í uppbyggingu æfingarrýma í húsnæði að Laugavegi 114–116, svonefndu Hlemmur.Haus. Rýmið muni hýsa fjögur æfingarrými fyrir 12 til 18 hljómsveitir fyrir fólk á aldrinum 15–30 ára. Þar verði jafnframt sameiginleg aðstaða með sviði og upptökuveri. Í tilkynningunni segir að staðsetningin við Hlemm sé afar hentug, þar sem samgöngur séu góðar og hljómsveitir muni starfa í skapandi og listrænu umhverfi, þar sem á efri hæðum hússins er vinnuaðstaða fjölda listamanna, auk þess sem Myndlistarskólinn í Reykjavík er í næsta nágrenni. Tónlistarborgin hefur undanfarið ár unnið að áherslubreytingum í verkefnum sínum í takt við þarfir tónlistarsamfélagsins. Skortur hefur verið á aðstöðu til æfinga og lifandi tónlistarflutnings og því hefur Tónlistarborgin fært stuðning frá verkefnum sem komin eru vel á veg til verkefna sem tengjast beint æfingaaðstöðu og lifandi tónlistarflutningi, þar sem þörfin er brýn.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Fleiri fréttir „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Sjá meira