Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar 16. apríl 2026 15:02 Árborg er og hefur undanfarin ár verið í örum vexti. Fólk hefur valið að setjast hér að, ala upp börnin sín og horfa til framtíðar. En með miklum vexti fylgja líka áskoranir og ábyrgð. Ný gögn frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sýna að þróunin er ekki alltaf eins og spár gera ráð fyrir. Á sumum svæðum hefur fjölgun verið minni en vænst var, en annars staðar hefur hún farið langt fram úr öllum áætlunum. Á sama tíma hefur verið byggt meira en áður var talin þörf fyrir, meðal annars til að vinna upp skort sem hefur safnast upp á undanförnum árum. Fyrir sveitarfélag eins og Árborg, sem er í miklum vexti, skiptir fyrirsjáanleiki sköpum. Við getum ekki leyft okkur að vera stöðugt skrefi á eftir, við þurfum að hugsa fram í tímann og skipuleggja uppbyggingu í takt við vöxtinn. Þegar við eltum vandann í stað þess að vera á undan Raunveruleikinn sem margir íbúar finna fyrir í dag sýnir að við höfum ekki náð að byggja upp innviði í takt við vöxtinn. Foreldrar bíða eftir leikskólaplássi, skólar eru undir miklu álagi og íþróttaaðstaða nær ekki að anna eftirspurn. Þetta eru ekki einstök tilvik eða tilfallandi vandamál. Þetta er mynstrið sem myndast þegar uppbygging íbúða og fjölgun íbúa er hraðari en uppbygging innviða. Í alltof langan tíma höfum við brugðist við eftir á. Þegar kerfið ræður ekki lengur við ástandið er gripið til tímabundinna lausna sem kunna að virka til skamms tíma, en duga ekki til lengri tíma. Við verðum að hætta að kasta krónunni fyrir aurinn því þannig byggjum við ekki upp sterkt samfélag heldur festum við okkur í vítahring skammtímalausna. Við erum stanslaust að plástra kerfið í stað þess að byggja það upp. Í stað þess að spyrja stöðugt hvernig við getum brugðist við vandanum sem er í dag, þurfum við að fara að spyrja stærri spurninga: hvernig viljum við að Árborg líti út eftir tíu ár? Eða tuttugu ár? Hvernig tryggjum við að samfélagið okkar ráði við þann vöxt sem við vitum að er fram undan? Við viljum að Árborg sé fjölskylduvænt samfélag Fjölskylduvænt samfélag verður ekki til af sjálfu sér, það þarf að byggja upp markvisst og hlúa að innviðum þess á hverjum tíma. Það þýðir að foreldrar geti treyst því að börnin þeirra fái leikskólapláss, að skólarnir og fagfólkið hafi rými til að sinna öllum börnum og að frístundir, íþróttir- og æskulýðsstarf sé raunverulega aðgengilegt öllum, óháð aðstæðum. Það þýðir líka að við horfumst í augu við stöðuna eins og hún er í dag, þar sem innviðir eru víða sprungnir og aðstaða nær ekki lengur að halda í við vöxt sveitarfélagsins. Fjölskylduvænt samfélag snýst ekki bara um að bjóða upp á þjónustu, heldur að tryggja að hún sé til staðar þegar á reynir. Þegar þjónustan nær ekki að halda í við vöxtinn er það ekki bara kerfið og starfsfólkið sem finnur fyrir því, það eru líka fjölskyldurnar í Árborg. Það birtist í biðlistum, auknu álagi og minni fyrirsjáanleika í daglegu lífi. Þetta er staða sem við eigum ekki að sætta okkur við. Samfélag fyrir alla – framtíð sem við mótum saman En samfélag snýst ekki bara um barnafjölskyldur. Það þarf að virka fyrir alla, fyrir ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref, fyrir fólk á miðjum aldri sem vill njóta lífsgæða og fyrir eldra fólk sem á rétt á öryggi, þjónustu og virðingu. Gott samfélag er ekki bara safn af þjónustuúrræðum, það er heild þar sem lífsgæði, tengsl og tækifæri fara saman. Það krefst þess að við hættum að hugsa í lausnum til skamms tíma og förum að byggja upp með skýra framtíðarsýn. Að við skipuleggjum uppbyggingu þannig að innviðir séu ekki skrefi á eftir, heldur í takt við vöxtinn. Að við tryggjum að vöxtur styrki samfélagið í stað þess að setja það undir stöðugt álag. Við stöndum á tímamótum í Árborg. Við getum haldið áfram á sömu braut, þar sem við eltum vandann og plástrum kerfið þegar á reynir. En það er ekki sú leið sem við viljum fara. Við viljum byggja upp með skýrri sýn og raunverulegum undirbúningi fyrir framtíðina. Á næstu dögum og vikum munum við í Framsókn í Árborg segja ykkur nánar frá því hvernig við sjáum fyrir okkur að ná þessu fram. Við ætlum að kynna skýra framtíðarsýn, raunhæfar lausnir og markvissar aðgerðir svo Árborg verði samfélagið sem við getum öll verið stolt af. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar annað sæti á lista Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar