Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar 16. apríl 2026 09:47 Um börn og barnvænt samfélag Í hverju samfélagi eru börnin framtíðin og þannig höfum við unnið að mikilvægum málum er snúa að börnum. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að tryggja að þau fái að vaxa og dafna í umhverfi sem skapar öryggi og veitir stuðning. Við viljum að þau fái raunveruleg tækifæri til að láta raddir sínar heyrast og að óskum þeirra sé mætt þar sem því verður við komið. Við í bæjarstjórn Akraness hófum þá vegferð með því að byggja upp og innleiða Barnvænt samfélag og mættum þeim kröfum sem lágu fyrir. Þetta verkefni var ekki átak – þetta er komið til að vera. Við hófum innleiðingu á Farsældarlögum og stöndum í dag uppi sem forystusveitarfélag í þeirri innleiðingu. Það var ekki átak – Farsældarlögin eru lykilþáttur í velferð og þjónustu við börn og fjölskyldna þeirra. Við höfum skapað traustan vettvang til þess að á Akranesi er sem áður gott að slíta barnsskónum. Tölum aðeins um...íþróttir og tómstundastarf Mikilvægt er að íþrótta- og tómstundastarf skipi stóran sess í lífi hvers barns og ungmennis. Á þeim vettvangi læra þau ekki bara hreyfingu og færni í sinni íþrótt, heldur líka samvinnu, aga, sjálfstraust og félagslega tengingu sem fylgir þeim út í lífið. Allir þurfa að finna sína hillu eins og sagt er þegar kemur að því hvort um er að ræða íþróttavöll, danssal, tónlistarskóla eða aðrar skapandi greinar. Við í bæjarstjórn höfum stutt við uppbyggingu á öflugu og fjölbreyttu íþróttastarfi á Akranesi. Samstarf við ÍA hefur verið farsælt og öll vinnum við að sama markmiði – börn eiga að hafa jöfn tækifæri til að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi. Það vita allir að þátttaka í íþróttum og tómstundastarfi hefur jákvæð áhrif á líkamlega- og andlega heilsu. Þess vegna skiptir máli að við horfum til allra þeirra gæða sem við búum við hér þegar kemur að íþrótta- og tómstundastarfi. Fjárfestum í börnunum og framtíð þeirra. Tölum líka um...innviðina okkar Innviðir: Hús, stólar, borð, tæki, hillur, bækur, blöð og blýantar. Jú, vissulega eru þetta innviðir. Skólar, leikskólar, íþróttahús, sundlaugar – allt þetta skiptir máli. En hvað eru innviðir án fólks? Hvað er leikskóli án starfsfólksins sem tekur á móti barninu þínu á morgnana með brosi og hlýju?Hvað er skólinn án kennarans sem sér styrkleikana í hverju barni?Hvað er íþróttastarfið án þjálfarans sem hvetur og byggir upp sjálfstraust? Svarið er einfalt: Innviðir verða ekki lifandi fyrr en fólk fyllir þá lífi. Við höfum á undanförnum árum ráðist í gríðarlega uppbyggingu á innviðum sem snúa að grunnþjónustu okkar og skyldu. Skólasamfélagið okkar er lifandi sönnun þess. Við höfum mætt áskorunum skólasamfélagsins af mikilli festu og greitt börnum, ungmennum, foreldrum og ekki síður starfsfólki götuna til að geta sótt og sinnt vinnu í góðu og heilnæmu umhverfi. Innviðir eru lítils virði ef ekki er fólk inn í þeim. Það er starfsfólkið sem mætir til vinnu sem skiptir máli. Við skulum ekki bara byggja upp innviði, hlutina. Við eigum hlúa sem best að fólkinu sem starfar innan þeirra. Þannig blómstrar starfið og þannig blómstra börnin okkar og ungmennin. Hér er ekki um átak að ræða – þetta er fjárfesting til framtíðar sem huga þarf að. Alltaf. Höfundur er bæjarfulltrúi á Akranesi og skipar 2. sæti á lista Samfylkingar í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydsís Inga Valsdótir skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun