Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir og Sandra Sigurðardóttir skrifa 15. apríl 2026 13:00 Undanfarin ár hefur mikilvæg þróun átt sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Með lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, sem tóku gildi árið 2022, var lagður grunnur að heildstæðri nálgun þar sem snemmtækur stuðningur og þverfaglegt samstarf er í forgrunni. Farsældarlögin, eins og þau eru nefnd í daglegu tali, eru mikilvægur hluti af stefnu og áherslum hvers sveitarfélags þegar rætt er um menntun. Rannsókn á stöðu og innleiðingu farsældarlaganna á landsvísu sýnir að á fyrstu árunum hefur myndast mikilvægur grunnur að auknu samtali og samvinnu milli þeirra ólíku aðila sem koma að þjónustu við börn og fjölskyldur. Sérstaklega hefur tekist vel til að samræma áherslur á milli skóla- og félagsþjónustu. Á sama tíma er ljóst að árangur jafn viðamikillar stefnu og farsældarlögin byggja á krefst tíma, rýmis og markvissrar vinnu við að þróa sameiginlegan skilning og styrkja samstarf enn frekar (Ragný Þóra Guðjohnsen og Eva Harðardóttir, 2025). Í Hveragerði endurspeglast þessi þróun skýrt. Nýleg úttekt á stoð- og stuðningsþjónustu í leikskólum, grunnskóla, frístundastarfi og fræðslu- og velferðarsviði sýnir að sveitarfélagið býr yfir sterkum faglegum innviðum, sérlega ríkum mannauði og skýrum vilja til að styðja á heildstæðan hátt við börn og fjölskyldur. Sérstaklega er bent á að aukið samstarf og samvinna ólíkra þjónustuaðila á sviði menntunar, velferðar, íþrótta og tómstunda hafi leitt til jákvæðra breytinga. Þá bendir úttektin einnig á að mikilvæg þróun hafi átt sér stað innan menntastofnanna í bænum með tilvísun í dæmi á borð við snemmtækan stuðning á leikskólastiginu, lausnamiðað starf í grunnskólanum og faglega öflugt frístundastarf. Þessir og aðrir styrkleikar sem úttektin varpar ljósi á eru mikilvæg leiðarljós í áframhaldandi innleiðingu farsældar og uppbyggingu menntamála í Hveragerði. Á sama tíma gefur úttektin til kynna tækifæri til áframhaldandi þróunar. Líkt og í öðrum sveitarfélögum á landinu er bent á mikilvægi þess að samræma verkferla, efla teymisvinnu og styrkja fyrsta stigs þjónustu með snemmtækum inngripum. Þannig er úttektin ekki eingöngu skýrsla sem segir til um stöðu mála heldur mikilvægt stefnuplagg sem nauðsynlegt er að líta til þegar kemur að forgangsröðun og innleiðingu verkefna á vettvangi menntunar. Velferð barna og menntun byggir á samvinnu Farsældarlögin byggja meðal annars á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem í 12. grein er kveðið á um rétt barna til að tjá skoðanir sínar í málum sem þau varða og að tekið sé tillit til þeirra í samræmi við aldur og þroska. Þetta er ekki aðeins spurning um að hlusta – heldur að skapa raunveruleg tækifæri til áhrifa. Í því samhengi er gagnlegt að horfa til svokallaðs Lundy-líkans (Lundy, 2007, 2018), sem hefur verið nýtt víða í stefnumótun á vettvangi sveitarfélaga með börnum og ungmennum. Þar er lögð áhersla á fjóra þætti: að börn hafi rými til að tjá sig, hafi rödd, að fullorðnir hlusti og – ekki síst – að sjónarmið barna hafi áhrif. Í Hveragerði eru þegar til staðar vettvangar og verkefni sem styðja við slíka þátttöku, sem dæmi má nefna nemendaráð og nemendaþing í skólum sem og nýstofnað ungmennaráð. Næstu skref felast í því að efla þessa vettvanga enn frekar og tryggja að þátttaka barna og ungmenna verði bæði markviss og merkingarbær. Þátttaka foreldra er jafnframt lykilatriði. Farsæld barna verður til í samspili heimilis og skóla, þar sem traust og opið samtal eru í fyrirrúmi. Með því að skapa skýrari farvegi fyrir aðkomu foreldra að þróun þjónustu og skólastarfs styrkjum við þann grunn enn frekar. Að lokum viljum við undirstrika að ný menntastefna, ein og sér, tryggir ekki bættan veruleika barna. Velferð barna byggir fyrst og fremst á daglegu starfi, á samtali um forgangsröðun, skýrum verkferlum og samvinnu þeirra sem að málum koma. Hún birtist í því viðhorfi að ekkert barn sé skilið eftir og að hvert barn fái verkefni og stuðning við hæfi. Það er þetta viðmót sem við þurfum að rækta og efla á hverjum degi og til framtíðar. Í grunninn snúast menntamál hvers samfélags um sameiginlega ábyrgð. Ef við viljum tryggja að rödd barna og foreldra fái raunverulegt vægi þurfum við að byggja áfram á samvinnu, trausti og sameiginlegum skilningi. Gerum þetta saman. Eva Harðardóttir, varamaður skólanefndar Hveragerðisbæjar og lektor á Menntavísindasviði HÍ og Sandra Sigurðardóttir, formaður fræðslu- og skólanefndar Hveragerðisbæjar og fulltrúi allsherjar- og menntamálnefndar Alþingis. Heimildir Lundy, L. (2007). ‘Voice’ is not enough: Conceptualising Article 12 of the United Nations Convention on the Rights of the Child. British Educational Research Journal, 33(6), 927–942. https://doi.org/10.1080/01411920701657033 Lundy, L. (2018). In defence of tokenism? Implementing children’s right to participate in collective decision-making. Childhood, 25(3), 340–354. https://doi.org/10.1177/0907568218777292 Ragný Þóra Guðjohnsen og Eva Harðardóttir. (2025). Innleiðing farsældarlaga: Samstarf ríkis og sveitarfélaga um þjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Stjórnmál og stjórnsýsla, 21(2), 175-200. https://doi.org/10.13177/irpa.a.2025.21.2.5 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar