Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2026 06:32 Anthony Taylor hefur hér dæmt af mark Kai Havertz en liðsfélagar Havertz, Ethan Nwaneri og Leandro Trossard, eru ekki sáttir. Getty/Alex Pantling Arsenal fékk ekki góðar fréttir þegar í ljós kom hver verður með flautuna þegar úrslitin gætu mögulega ráðist í baráttunni um enska meistaratitilinn 2026.
Manchester City tekur á móti Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi en þar getur City minnkað forskot Arsenal í þrjú stig og einnig náð betri markatölu. Arsenal hefur verið í basli í síðustu leikjum og tapaði á móti City í úrslitaleik enska deildabikarsins á dögunum. Liðið tapaði líka á móti Bournemouth á heimavelli um helgina og mætir Sporting í seinni leik átta liða úrslita Meistaradeildarinnar í kvöld. Á sama tíma hafa City-menn verið afar sannfærandi í sínum leikjum og unnu meðal annars 3-0 útisigur á Chelsea um síðustu helgi. Það er mikið undir í stórleiknum um næstu helgi þar sem Arsenal getur farið langt með að tryggja sér fyrsta enska meistaratitilinn í 22 ár með sigri. Liðið er samt á útivelli og nú er komið í ljós að það verða ekki aðeins City-menn sem verða á heimavelli. Anthony Taylor, dómari leiksins, er fæddur á Stór-Manchester svæðinu en hann er stuðningsmaður Altrincham. Skytturnar hafa aðeins unnið tvo af síðustu níu leikjum sem hann hefur dæmt hjá þeim. Síðustu tveir hafa endað með jafntefli, 0-0 á móti Liverpool og 1-1 á móti Chelsea. Taylor dæmdi báða Manchester-slagina á þessu tímabili, United vann seinni leikinn 2-0 en City vann fyrri leikinn 3-0. Taylor hefur dæmt tvisvar á Ethiad-leikvanginum á þessu tímabili og City vann báða leikina, 3-1 á móti Bournemouth og 3-0 á móti United. View this post on Instagram A post shared by DailyAFC (@dailyafc_)
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Sjá meira