Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. apríl 2026 14:48 Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov fyrir leik Íslands og Svartfjallalands á EM 2022. vísir/Uros Hocevar Evrópska handknattleikssambandið hefur dæmt norðurmakedónsku dómarana, Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov, í tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi. Þeir fengu einnig háa fjársekt.
Í byrjun ársins bárust fréttir af því að Nachevski og Nikolov hefðu verið settir út af sakramentinu fyrir að senda falsað myndband til EHF þar sem þeir þreyttu þolpróf til að þeir fengju að dæma á EM 2026. Fyrirtækið Fitgood Pro, samstarfsaðili EHF, fór yfir myndböndin sem þeir Nachevski og Nikolov skiluðu inn og taldi að þau væru fölsuð. Norður-Makedóníumennirnir fengu þar af leiðandi ekki að dæma á Evrópumóti karla í janúar. EHF sendi í dag frá sér yfirlýsingu þess efnis að Sportradar, samstarfsaðili sambandsins í siðferðismálum, hefði komist að þeirri niðurstöðu að átt hefði verið við myndböndin sem Nachevski og Nikolov skiluðu inn fyrir EM. Þeir félagar mega ekki dæma á vegum EHF né koma að neinu sem viðkemur sambandinu í tvö ár. Hvor um sig fékk einnig fimm þúsund evra sekt sem jafngildir rúmlega sjö hundruð þúsund íslenskra króna. Nachevski og Nikolov hafa verið í fremstu röð dómara í handboltaheiminum undanfarin ár. Þeir hafa áður verið sakaðir um að vera með óhreint mjöl í pokahorninu en í rannsóknarheimildaþætti TV 2 frá 2023 voru þeir bendlaðir við hagræðingu úrslita. Ekki tókst þó að sanna sök þeirra og þeir dæmdu á öllum stórmótum þar til á EM í janúar þar sem þeir sátu heima eftir að hafa svindlað á þolprófinu.
Handbolti Mest lesið Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Fleiri fréttir Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira