Sundið hleypir Rússum aftur inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 20:01 Rússnesku sundmennirnir Nikita Lobintsey, Andrey Grechin, Vladimir Morozov og Danila Izotov unnu gull í boðsundi á Ólympíuleikunum í London. Getty/EMPICS Sport Alþjóðasundsambandið leyfir rússneskum sundmönnum aftur að keppa undir eigin fána og með eigin þjóðsöng.
Sambandið tilkynnti á mánudag að bæði Rússar og Hvít-Rússar fái nú að keppa á alþjóðavettvangi án takmarkana. „Fullorðnum íþróttamönnum frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi verður heimilt að keppa á mótum á vegum FINA á jafnréttisgrundvelli við íþróttamenn frá öðrum þjóðum, í eigin búningum og með eigin þjóðsöngva,“ segir í tilkynningunni. „Meira en sjö hundruð skimanir voru gerðar á íþróttafólki með hvítrússneskt eða rússneskt íþróttaþjóðerni sem hluti af beitingu leiðbeininganna. Einstaklingar með þetta íþróttaþjóðerni tóku þátt sem hlutlausir einstaklingsíþróttamenn frá árinu 2023 og síðar bættust lið í hópinn. Þótt beitingu leiðbeininganna hafi verið breytt, samþykkti stjórn Alþjóðasundsambandsins lykilákvæði í þágu öruggra og sanngjarnra keppna,“ segir í tilkynningunni. „Íþróttafólki með hvítrússneskt eða rússneskt íþróttaþjóðerni verður aðeins heimilt að keppa þegar það hefur staðist að minnsta kosti fjögur lyfjaeftirlit í röð sem framkvæmd eru í samstarfi við Alþjóðlegu prófunarstofnunina (ITA) og lokið bakgrunnsskoðun hjá heiðarleikaráðinu (AQIU),“ segir í tilkynningunni. Alþjóðasundsambandið skipuleggur bæði sund, dýfingar og sundknattleik – og hefur áhrifamikla rödd innan Ólympíuhreyfingarinnar. Ákvörðunin sem tekin var á mánudag gildir aðeins um þeirra eigin viðburði. Íþróttamönnum frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi hefur undanfarið verið heimilt að taka þátt í ýmsum alþjóðlegum meistaramótum sem hlutlausir keppendur.
Sund Ólympíuleikar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Sextán ára stjarna Vals heillar Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn